Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 8
2
M O R GUNN
artíð Einars H. Kvarans og það hálfa annað ár, sem síðan
er liðið, og séra Kristinn Daníelsson hefir að mestu ann-
ast útgáfuna.
Þegar 20 ára áfanganum lauk, afhenti séra Kristinn
forseta Sálarrannsóknafélags íslands, séra Jóni Auðuns,
ritstjórnina, og væntum vér að MORGUNN njóti vin-
sælda undir stjórn hans og verði enn, sem áður, öflugur
og einarður boðberi „mikilvægasta málsins“.
Hvað er framundan?
Nýtt starfstímabil, sem helgað verður útbreiðslu þess
málefnis, sem margir eru sammála um að engan veginn
megi niður falla að kynna þjóðinni. MORGUNN er orð-
inn mikið og eigulegt rit. Á nærfelt 5 þúsund blaðsíðum
er hann búinn að flytja íslenzkum lesendum mikinn og
merkilegaii boðskap, en þó er miklu meira eftir ósagt
enn. Ýmsar aðstæður valda því, að ítarlegar, vísinda-
legar rannsóknir á sálrænum fyrirbrigðum er ékki unnt
að reka hér hjá oss, enn sem komið er, en úr því vill
MORGUNN bæta, með því að flytja fregnir af erlend-
um rannsóknum og hjálpa þannig lesendum sínum til að
fylgjast að nokkru með því helzta, sem í þessum efnum
gerist erlendis. En auk þess mun hann fylgjast með því,
sem merkast gerist í þessum efnum hér hjá oss og fræða
lesendur sína um það.
Það er sannfæring vor, að sálarrannsóknamálið sé svo
stórkostlega þýðingarmikið, að á oss hvíli sú tvímæla-
lausa skylda, að vinna fyrir það af heilum hug, og því
heitum vér á alla unnendur málsins, að styðja það mikla
nauðsynjaverk, sem Morgunn vinnur fyrir þjóð vora. Það
getið þér m. a. með því að útvega ritinu nýja kaupendur.
MORGUNN er mikið lesinn, bæði í kauptúnum lands.
ins, kaupstöðum og sveitum; úr einni af mestu menn-
ingarsveitum landsins var oss t. d. skrifað, að hann mundi
mest lesinn allra rita, sem kæmu í bókasafn sveitarinnar,
hann væri í sífelldum útlánum, og svipaðar fregnir höf-