Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 121
MORGUNN
115
Hann út, Drottinn Jesús Kristur?“ (Þetta var svar við
spurningu, sem Vale Owen bar fram í huganum um
Krist). Hefi ég ekki þegar sagt þér hvar Hann er, og
þú hefir lesið það í Bókinni. Á meðal tollheimtumanna
og syndara dvelur Hann, til að frelsa þá. Hann þjónar
ennþá þeim, sem mest þurfa Hans með. Jafnvel á augna-
bliki barnalegs stærilætis eða guðrækilegs fagnaðar
kemur til allra þjóna hans innri opinberun um návist
Meistarans, sem ýmist snertir sálina eins og koss, eða
skipar henni til þjónustu og veitir henni blessun um leið.
Jafnvel eins og Hann kom til mín, sonur minn, kann
Hann að koma til þín“.
Með þessum orðum gaf Aziel mér svo mikið öryggi og
svo sterka sannfæring, að ótti minn hvarf, og þreytan
varð minni þó ég héldi áfram að styðjast við armlegg
hans á leið okkar áfram til sí-vaxandi ljóma Háland-
anna. Andi minn hefði brostið af ótta, ef ég hefði ekki
verið búinn að ávinna mér nokkurt þolgæði á síðustu
erfiðleikaárum mínum í jarðlífinu. Trúin hafði staðizt
marga raun, en hin líkamlgea þjáning og sú sannfæring
mín, að starf mitt hefði misheppnazt, hvíldi á mér eins og
farg. 1 þrenging minni hafði ég lagt af mér byrðina og
ég var þreyttur allt til dauða.
Að þekkja Jesú, eins og Hann var og er, hafði aðeins
verið ótöluð þrá sálar minnar. Ekkert orð hafði fallið af
vörum mínum, en Aziel hafði þekkt bæði óskir mínar og
ótta og frásögn hans fyllti mig von og þrótti.
„Sonur minn“, sagði hann, þegar ég fór að safna kröft-
um til ferðarinnar, sem framundan var, „Jesús mun birt-
ast þér eins og þú hugsar þér útlit Hans. Hinn guðlegi
Kærleikur birtist fullkominn hinum fullkomnu, ,en það
er vilji Hans, að hinir ófullkomnu sjái Hann í Hans
mannlegu mynd.
„Meistarinn kom til mín, og engin orð fá lýst útliti
Hans. Myndirnar, sem þið hafið af Honum á jarðarsvið-
inu, eru afsprengi mannlegra hugsjóna, og eru takmark-
8*