Morgunn - 01.06.1940, Síða 34
28
M O R G U N N
Kristur er voldugasti veruleikur andaheimsins, aÖ svo
miklu leyti, sem spiritisminn telur sig hafa fengið vitneslcju
um þann heim. Fregnirnar að handan segja oss að á hærri
sviðunum sé það augljósari staðreynd en það geti orðið á
jörðunni að hann sé Ijómi dýrðar Guðs og ímynd hans ve'ru.
Góðir tilheyrendur, ég veit ekki að hve miklu leyti
mér hefir tekizt að igera yður það mál skiljanlegt, sem
mig langaði, f. h. S. R. F. í. til að skýra fyrir yður: hvað
segir spiritisminn um Krist?
Ég reyndi að taka málið frá þrem hliðum
1. Spiritisminn og deilurnar um guðdóm Krists. Ég
sýndi þar fram á, að þótt þær deilur séu spiritisman-
um í rauninni óviðkomandi, hefir hann óbeinlínis orð-
ið til þess að glæða trú manna á guðdóm frelsarans,
einkum að því leyti, að mörg af sannindum hans hafa
orðið til þess að gera mönnum aðgengilegra að trúa á
himneska fortilveru Krists fyrir fæðing hans til jarð-
arinnar. En hinsvegar benti ég á að þar sem afstaða
mannann til slíkra leyndardóma væri langt um frek-
ara komin undir innri hugarhneigð þeirra—tempera-
menti — en þekkingu þeirra, væri afstaða spiritist-
anna til þessara hluta eðlilega margvísleg.
2. Þáttur erindis míns var: Spiritisminn og hinn jarð-
neski, sögulegi Jesús Kristur, eins og guðspjöllin sýna
oss mynd hans. Með dæmum af kraftaverkum Jesú
og liliðstæðum eða líkum nútímafyrirbrigðum sýndi
ég fram á, hversu stórlega spiritisminn hjálpar oss til
að skilja kraftaverkamanninn frá Nazaret og hversu
óhugsandi það er, að vorum dómi, að guðfræðin og
kirkjan geti gert skyldu sína gagnvart mönnunum
meðan haldið er áfram að ganga fram hjá þeim
merkilegu staðreyndum, sem sálarrannsóknirnar
hafa leitt í ljós um þessi efni — og loks var