Morgunn - 01.06.1940, Page 16
10
M O R G TJ N N
orðunum, sem Filippus beindi til efasemdamannsins
Nathanaels forðum: ,,K o m þú og sjá.“
Jóhannesarguðspjall segir oss, að í skilnaðarræðunni
til lærisveinanna hafi Jesús mælt þessum orðum: ,,Sann-
lega segi ég yður: sá, sem trúir á mig, mun einnig gjöra
þau verk, sem ég gjöri; og hann mun gjöra enn meiri
verk en þessi“.
Kirkjulegir andstæðingar spiritismans munu ekki efa
að þessi orð séu réttilega höfð eftir Jesú, og þau eru svo
Ijós, að þau taka af öll tvímæli. Það er fyrirheit hans, að
mátturinn til að vinna kraftaverk eigi um aldur að
fylgja þeim, sem á hann trúa. Og þessi undursamlegi
máttur hélzt innan kristnu safnaðanna út allt postula-
tímabilið og all-miklu lengur. En saga kristninnar sýnir
oss, að forystumenn hennar misstu furðu snemma trúna á
þetta tvímælalausa fyrirheit Krists. Vitranamenn og spá-
konur áttu þó lengi helzt griðland innan klausturmúr-
anna, en einnig þangað teygði armur kirkjuvaldsins sig
til að slökkva andann. Kristin trú fór að smá-hætta að
vera trú hins lifandi anda máttarverka, opinberana og
vitrana, eins og hún var á fyrstu og fegurstu dögum sín-
um, einkum í söfnuðum Páls postula. I staðinn fyrir and-
ann fengu menn trúarjátningar, í staðinn fyrir krafta-
verkin fengu menn misjafnlega merkilega trúarlærdóma
og í staðinn fyrir sí-streymandi lind opinberana og vitr-
ana fengu menn andlausa bókstafaþrælkun og kreddur,
sem kirkjuvaldið kenndi þeim, að þeim væri sáluhjálpar-
atriði að trúa.
En jafnhliða því, sem trúarlíf kristninnar stirðnaði í
kennisetningum og trúarlærdómum kirkjuvaldsins smá-
hvarf hinn sögulegi Jesús úr trúarmeðvitund mannanna.
Þetta var þeim guðfræðingum ljóst, sem fóru að beita sér
fyrir sannsögulegri rannsókn Ritningarinnar, og fóru
að hreinsa mynd hins sögulega Jesú frá Nazaret af öll-
um þeim umbúðum, sem 18 alda guðfræði hafði vafið
hana í. En þrátt fyrir verðleika sína og góðan vilja mis-