Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 100
94
MORGUNN
Merkileg Ijósmynd,
tekín á líkamningafundi hjá hr. Einer Nielsen, að
tuttugu fundargestum viðstöddum.
Flestir lesendur Morguns munu kannast við danska
miðilinn Einer Nielsen, sem oft hefir verið getið hér í
ritinu, og margir Reykvíkingar þekkja, bæði persónu-
lega og sem frábæran líkamningamiðil, því að tvívegis
hefir hann komið hingað til landsins og gefið fjölda
manns tækifæri til að sækja fundi hjá sér. (Sjá fundar-
skýrslurnar í Morgni V. 1. og XII. 1.). Auk þess hafa
margir íslendingar verið á fundum hjá honum, er þeir
hafa verið staddir í Kaupmannahöfn, og hr. Nielsen
jafnan tekið þeim hið bezta. M. a. er Sigurjón Pétursson
kaupm. nýkominn heim frá Danmörku; tjáði hann mér,
að hann hefði haft nokkra fundi með Einer Nielsen, og
lét hið bezta af.
Einn þeirra manna, sem marga tilraunafundi hafa sótt
hjá Nielsen síðustu árin er sænskur prestur í Helsing-
borg, Liljeblad að nafni.
Á fundunum, sem hann sótti, líkamaðist Ástríður
Belga-drottning hvað eftir annað. Drottningin fórst af
bílslysi fyrir nærfellt fimm árum, eins og marga mun
reka minni til. Að uppruna var hún sænsk prinsessa. og
á fundunum hjá Nielsen hefir hún jafnan mælt á móð-
urmáli sínu. Með leyfi hennar hafði Liljeblad prestur
gert tilraunir til að ljósmynda hana, þær tilraunir báru
glæsilegan árangur þ. 9. júní s. 1. Að viðstöddum 20 fund-
argestum heppnaðist prestinum að taka af henni mynd-
ina, sem Morgunn birtir hér, og munu margir gjörþekkja
svip hinnar ungu fríðleikskonu, því að um allan heim
birtu blöðin myndir af henni í sambandi við slysið, sem
varð henni að fjörtjóni.