Morgunn - 01.06.1940, Síða 28
22
MORGUNN
um var þessi furðulegi gestur, Katie King, svo sterk, að
hún gekk um herbergið með Sir William, sem hélt hand-
legg sínum utan um hana, fékk að þreifa á henni og
grannskoða hana. Einu sinni, þegar tólf rannsóknamenn
voru viðstaddir, gekk Katie um allt herbergið og talaði
við hvern íundarmanna á meðan miðillinn lá sofandi á
bekk hjá þeim í herberginu; og þegar einhver fundar-
gesta hafði orð á því, að klæðnaður hennar væri allur
götóttur, strauk hún hönd sinni eftir klæðnaðinum og á
sama augnabliki fylltust götin og föt hennar urðu heil.
Og þegar Katie hafði kvatt þá alla, hvarf hún í gegn um
gólfið til að sýna, að hún væri andi, en ekki nein jarðnesk
vera.
Því miður vinnst mér ekki tími til að segja ítarlega
frá öllum þeim margháttuðu varúðarráðstöfunum, sem
Sir William gerði til að fyrirbyggja svik, en mig langar
til að segja frá síðasta fundinum, sem Katie King birtist
á. Þegar 1 byrjun hafði hún lýst yfir því, að hún gæti
ekki verið með miðlinum, ungfrú Cook, lengur en í þrjú
ár, þá yrði hún að hverfa aftur til sinna heimkynna. Síð-
asti fundurinn hófst og Katie fór strax að tala um að nú
væri kveðjustundin nálæg. Hún tók við blómvendi, sem
Mr. Tap hafði komið með og liljuvendi, sem Sir William
rétti henni. Hún bað Mr. Tap um að leysa blómvöndinn
í sundur og leggja blómin á gólfið fyrir framan sig; því
næst settist hún á gólfið og bað þá, sem viðstaddir voru,
að setjast umhverfis sig. Hún skifti blómunum á milli
þeirra, skrifaði nokkrum vinum sínum kveðjubréf, þ. á
m. skrifaði hún miðlinum bréf og tiltók fallega rós, sem
skilnaðargjöf til hennar. Þá tók hún skæri, klippti lokk
úr hári sínu og skipti honum milli fundargesta. Því næst
settist hún aftur, klippti pjötlur úr kjól sínum og gaf,
sem vinargjafir; þá spurði einhver hana hvort hún gæti
fylll upp götin, sem hún hefði klippt á klæðnað sinn, hún
strauk hönd sinni yfir götin og kjóllinn varð samstundis
heill. Nú var miðillinn að vakna, Katie gekk til hennar