Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 125
MORGUNN
119
„Ég er ljós heimsins" — er staðhæfing, sem Sálin fær
dýpri og dýrðlegri skilning á hérna megin þegar hún
hefir komizt að raun um, að allt líf gefur frá sér ljós, og
að afneitun lífsins fæðir af sér dauða og myrkur. Aðeins
Hann, sem stöðugt er að fórna fyrir syndara — aðeins
Hann skín stöðugt í myrkrinu, og jafnvel þótt þeir sjái
Hann ekki, er Hann stöðugt að varpa ljósi á veg þeirra.
Ömurlegt er að sjá þá, sem ganga í myrkrinu eftir
dauðann. Ég hefi séð nóg af afleiðingum syndarinnar til
þess að skilja betur en áður merking þessara alkunnu
ritningarorða: „Laun syndarinnar eru dauði, en náðar-
gjöf Guðs er eilíft líf“.
A víð og dreif.
(Eftir ritstjóra nn).
Hirðisbréf
biskupsins.
Að dæmi fyrirrennara sinna hefir bisk-
upinn yfir íslandi, herra Sigurgeir Sig-
urðsson, sent út „Hirðisbréf til presta og
prófasta á íslandi“. Er hirðisbréf hans bæði myndar.
legt og skorinort skjal, og í þeim anda samið, sem við
mátti búast af hinum frjálslynda biskupi.
1 bréfi þessu sendir hirðir íslenzku kirkjunnar prest.
um og próföstum landsins kveðju sína og auk þess, sem
hann ræðir við þá ýms af innri og ytri vandamálum kirkj-
unnar, gerir hann grein fyrir afstöðu sinni til þeirra
andlegu strauma, sem mest ber á í þjóðlífinu. Ritar
biskup þar svo ljóst mál, að hverjum á að vera auð-
Skilið.
Sá kaflinn, sem fjallar um afstöðu þessa nýja kirkju-
hirðis til spiritismans, er svo merkilegur, að sjálfsagt