Morgunn - 01.06.1940, Page 19
M 0 RGUNN
19
tengdur honum með ljósbandi, sem skyggnir menn sjá
að slitnar á andlátsaugnablikinu sjálfu.
En er það nú alveg víst að engin oi'ð Jesú gefi oss
neinar upplýsingar um þennan dularfulla ljós- eða lífs-
þnáð, sem spiritistar fullyrða, að tengi saman andlega
líkamann og efnislíkamann? Vér vitum að til eru önnur
æfaforn guðspjöll en þau, sem komust inn í Nýja testa-
mentið, og vitanlega er engan veginn útilokað að þau
8'eymi einhver ummæli, sem rétt eru eftir Jesú höfð. Eitt
þessara gömlu guðspjalla, utan N. tm., heitir guðspjall
þeirra tólf og álítur próf. Ásmundur Guðmundsson það
vera frá síðari hluta annarar aldarinnar. En í því guð-
sPjalli eru þessi merkilegu orð höfð eftir Jesú, í sam-
bandi við uppvakning Lasarusar: Jesús sagði við þá:
,,Leysið hann og látið hann fara. Þegar þráður lífsins
er slitinn kemur það (lífið) vissulega ekki aftur; en á
meðan hann er heill, er von“.
Páum vér ekki í þessum eftirtektarverðu orðum og í
sambandi við það, sem spiritisatrnir segja um lífsþráðinn,
nokkurn skilning á undrinu mikla um uppvakning ,,dá-
inna?“ Jesús hefir séð, að þessi þýðingarmikli þráður —
eða sambandsliður sálar og líkama — var enn ekki slit-
inn og að þess vegna var mögulegt að kalla sálina til
líkamans aftur.
Þetta mál er vitanlega lítt sannað í samanburði við
ýms önnur sálræn fyrirbrigði, eins og t. d. upplyfting-
arinnar, eða upphafning hins náttúrlega þunga, sem ég
gat um áðan, en er samt ekki þarna opin smuga til skiln-
ings á myrkum leyndardómi? Að slíkum smugum munu
andlega vakandi menn jafnan leita; það er þeirra heil-
brigða einkenni; og það er tilgangslaust að reyna að
felja þeim trú um, að Guð hafi ekki ætlazt til að þeir
væru að reyna til að skilja leyndardóma lífsins, öll fram-
sókn mannanna er ávöxtur þess, að þeir hafa verið að
reyna að skilja bæði jarðneska og andlega hluti.
Enn verður það ljóst af frásögnum guðspjallanna, að
2*