Morgunn - 01.06.1940, Qupperneq 44
38
MORGUNN
Lincoln Bandaríkjaforseti
og sálarrannsóknirnar.
Það er staðfest úr mörgum áttum, að Lincoln forseti
naut sérstakrar, yfirvenjulegrar tilsagnar í því verki,
sem allur heimurinn blessar hann fyrir. Kase ofursti
sagði ritstjóranum fyrir „Spiritual Scientist“ og Mrs.
Britten frá eftirfarandi atburðum.
„Fjóra sunnudaga í röð var sannanamiðillinn, Mr. Con-
klin, gestur í forsetabústaðnum. Niðurstaðan af þeim
heimsóknum varð sú, að Lincoln lagði þá afdrifaríku til-
lögu fyrir ráðuneyt isitt, að birt væri opinberlega yfir-
lýsing um, að öllum þrælum í ríkjunum væri gefið frelsi“.
En þótt áhrifin frá Conklin og Richmond, þingmanni
í efri málstofunni, sem var miðill, væru sterk, varð fleira
til að stuðla að hinni frægu yfirlýsing, því að ofurstinn
segir ennfremur:
,,Með Wattles dómara var ég boðinn til miðilsins Mrs.
Laurie, og hverjum skyldum vér mæta þar öðrum en
forsetanum og frú hans .... Ég sá unga stúlku ganga
hægum skrefum að forsetanum. Augu hennar voru lok-
uð. Hún ávarpaði forsetann og sagði: ,,þessi borgara-
styrjöld mun aldrei enda og sigurfregnin mun aldrei
hljóma um Norðurríkin fyrr en þér hafið sent út yfir-
lýsingu, sem gefur ævarandi frelsi þeim miljónum, sem
bundnar eru í þrælkun í yðar óhamingjusama landi“.
Þetta var höfuðinnihald þess samtals, sem hún átti við
forsetann í fulla hálfa aðra klukkustund.
Tveim kvöldum síðar var ég aftur staddur hjá Mrs.
Laurie og enn hitti ég forsetahjónin þar. Miðillinn féll í
trans og svipaðar orðsendingar komu, sem fyrr. Yfir-
lýsing forsetans var gefin út í september 1862 og átti að
ganga í gildi í janúar 1863, en á þessum tíma (h. u. b.