Morgunn - 01.06.1940, Síða 71
MORGUNN
65
Skyndilega var hún komin að líkama sínum aftur og
eftir nokkurt hik dróst hún inn í hann.
Allt reyndist rétt um gas-manninn og þjónustustúlk-
una, sem húsbóndinn var að gefa smápening fyrir greiða,
sem hún hafði gert honum tveim dögum áður. Ókunni
maðurinn, sem hún hafði séð hjá hjónunum, kom með
þeim á fundinn, en hann var bróðir frúarinnar, og ,,Ger-
trud frænka“ kom þar einnig.
★
í þessari frásögn frú Leonards eru mörg atriði, sem
benda til ákveðinnar og sjálfstæðrar starfsemi sálar-
innar utan líkamans, og öll atriðin, sem hún setur sér
að muna og bera fyrir hana á þessu furðulega ferðalagi
hennar, reynast rétt, þegar hún vaknar aftur í jarðneska
líkamanum. Að hún umgengst jöfnum höndum jarð-
neska menn og framliðna, sýnir að sá, sem fer sálför-
um, lifir á landamærum tveggja veralda og sér inn í þær
báðar.
Ekki all-fáir menn hérlendir fullyrða að þeir fari sál-
förum og mætti vafalaust segja af því merkilegar sögur
ef ég ætti þess kost að birta þær hér.
Sennilega mundi það kosta sumt sálrænt fólk minni
fyrirhöfn að rækta með sér þennan hæfileika svo að
merkilegur árangur fengist, en að taka bílstjórapróf, að
ég tali ekki um að læra að stjórna flugvél. En enginn
skyldi leggja stund á þessa hluti. af einskærri forvitni,
ef engin æðri markmið eru höfð fyrir augum.
J. A.
6