Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 74
68
MORGUNN
hafa yðar eigin orð fyrir því, að málefnið sé yður enn
dýrmætara nú en áður, af því að þér hafið hlotið meiri
tækifæri til að sannreyna mikilvægi þess, þá vitum vér
einnig að þér starfið með oss enn og vér gleðjumst við
þá tilhugsun. Og einnig til yðar hinna, sem sækið minn-
ingarhátíð vora frá hinum eilífu bústöðum beinum vér
ástúð og þökk: Liðinn faðir, eða látin móðir, sem ótelj-
andi ljúfar minningar um fórnar- og kærleiksstörf lið-
inna ára eru bundnar við, systir, eða bróðir, sem áttir
með oss unað og gleði æskuáranna, ástvinur, sem ljúft
var að lifa með, en sárt að sakna, dóttir, sem tók með
sér burt margar Ijúfar, bjartar vonir og elskulegur, vax-
inn sonur, eða drengurinn litli, sem dó — hversu ljós-
lifandi eru myndir yðar, sem hugurinn sér í kvöld, og
hann faðmar þær allar með djúpsettri ástúð, sem minn-
ingar frá ljúfum, liðnum árum vekja, og bæn: Blessun
fylgi yður á sumarlöndum hinna eilífu veralda, góður
Guð gleðji yður, fögnuður himnaríkis og friður sé með
yður, Guðs eilífa ljós lýsi oss öllum til fagnaðarríkra
endurfunda.
★
Þegar ég renni huganum yfir það, sem mér er dýr-
mætast af öllu því, sem sálarrannsóknamálið hefir gefið
mér, bæði fyrir lestur bóka og sambandstilraunir með
miðla, finnst mér að ég geti bundið það í tveim orðum
og þessi tvö orð eru: þjónusta kærleiJcans.
Ég geri ráð fyrir, að eitthvað svipað geti mörg yðar
sagt, svo rækilega staðfesta skeytin að handan kærleiks-
boðskap meistarans frá Nazaret.
Ég tek til dæmis bók eins og Bréf frá Júlíu, sem er
yður öllum kunn. I bili kemur mér engin bók til hugar,
sem er í afdráttarlausara samræmi við boðskap guð-
spjallanna en hún. Hún segir oss frá kærleikslífi æðri
tilverusviða með svo miklu sannfæringarafli, að kald-
rifjaður má sá maður vera, sem ekki finnur ljúfan streng