Morgunn - 01.06.1940, Page 57
MORGUNN
51
sagt sér draum, sem væri fyrirboði einhvers óláns. Þeir
komu sér saman um að taka eftir hvort nokkuð kæmi
fyrir.
Að morgni hins 14. apríl, daginn áður en hann var
niyrtux’, hélt hann ráðherrafund og sagði þar, að um
nóttina hefði sig enn á ný dreymt gamlan draum, sem
vanur væri að boða sér þýðingarmestu atriðin í lífi sínu.
»,Þennan sama eftirmiðdag", segir einn af vinum hans
úr einkalífverði hans, ,,sá ég Lincoln daprari en ég
hafði nokkurn tíma séð hann áður, og hann sagði við
mig: Crook, ég held að einhverjir séu að sækjast eftir
lífi mínu“-
Sólarhring síðar var Abraham Lincoln myi’tur.
Nokkrir miðlar voru áður búnir að segja fyrir dauða
forsetans, meðal þeiri’a var miðillinn frægi, Mr. Ilome.
Home var þá staddur í Dieppe, frönskum baðstað, og var
að horfa í kristalls-hjálm eftir beiðni rússnesks manns,
þá sá hann mikinn mannfjölda og í fjöldanum mann,
sem var myrtur og var að hníga úr stól sínum. Hann
hrópaði: ,,Það er Lincoln! og þetta gerist innan árs“.
Tímaákvörðunin var ekki nákvæm, því að all.mikið
ieið á annað ár til morðsins, en allt annað reyndist rétt,
því að forsetinn var myrtur — eins og kunnugt er —
þar sem hann sat í stól í stúku sinni í Ford-leikhúsinu í
Washington.
Thackeray
enska stórskáldið, sagði einu sinni: „Það er auðvelt fyi’ir
yður, sem líklega hafið aldrei séð sálræn fyrii’brigði, að
tala eins og þér gerið; en ef þér hefðuð séð það, sem ég
hefj orðið vottur að, munduð þér vei’a á annari skoðun“.
4*