Morgunn - 01.06.1940, Page 96
90
M O R G U N N
En þessar tilraunir hafa ekki aðeins leitt í ljós að
hlutir geti varðveitt og tekið á móti hugsanamyndum
vitundargæddra vera í umhverfinu. Þeir sýnast og jafn
vel eiga sitt sjálfstæða minni eða frumminni, minningar
um sína eigin sögu og þróun gegnum aldirnar. f höndum
þessara áðurnefndu manna verður jarðlagasýnishornið,
bergmolinn og steingervingurinn, sem lifandi kvikmynd,
þar sem unnt er að greina árþúsunda gamla þróunar-
sögu þeirra í hlutrænum myndum.
Fyrir nokkrum árum gerði kunnur brezkur fræðimað-
ur ítarlegar tilraunir á þessu sviði,. Hann fór með nokk.
ur jarðvegs sýnishorn til konu einnar, sem þessum hæfi-
leika var búin. Hún átti heima í Wales og hafði alið þar
allan sinn aldur, hafði engrar menntunar notið og talaði
aðeins mállýzku þá, sem héraðsbúar tala, kunni ekki
ensku, svo að hann varð að hafa túlk við hendina. Hún
lýsti mjög skilmerkilega og greinilega því, er hún sá í
sambandi við sýnishorn þessi og svo var að sjá, sem
þau hefðu varðveitt sögu sína gegnum aldirnar og rakti
hún þróunarferil þeirra allt til ísaldartímabilsins, en
lengra komst hún ekki. Umsögn hennar var svo borin
undir jarðfræðinga, sem staðfestu sennileik þess, er hún
hafði sagt, og þeir töldu að sýnishorn þau, er hún at-
hugaði, væru frá ísöldinni.
En svo er einnig að sjá, sem hlutirnir verði fyrir áhrif-
um hver frá öðrum, aðeins gegnum snertingu eina, að
hugsanamyndirnar eða það, sem skapar þær í vitund
miðilsins, geti flutzt með þessum hætti yfir frá einum
hlutnum til annars. Miðill einn fékk einu sinni hálsknýt-
isnælu til athugunar. Hún hafði lengi legið ósnert. Hann
lýsti eiganda hennar mjög greinilega, en kom því næst
að íornlegri öskju, sem hann sagði að nælan hefði legið
í, og minnti því næst á erlent fréttablað í sambandi við
næluna. Þessu skildi eigandi hennar ekki í, en þegar
farið var að athuga öskjuna, kom í ljós, að hún virtist