Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 67
MORGUNN
61
„Ef þetta hafa aðeins verið fjarhrif frá jarðnesk-
um mönnum, þýðir það hvorki meira né minna en það,
að miðillinn hefir getað lesið í hug fjarstaddrar per-
sónu, sem hann vissi ekki einu sinni að var til, og enn
fremur látið sem þessi vitneskja kæmi frá framliðn-
um syni mannsins, sem miðillinn vissi heldur ekki að
hefði verið til. Ef hr. Mc Cabe — andstæðingur minn
— eða nokkur annar svonefndur ,,rationalisti“ getur
trúað á slík „fjarhrif", er trú þeirra vissulega mikil.
Ég játa, að trúgirni mína er ekki hægt að teygja svo
langt. Ég neyðist til að vera vantrúaður“.
Ég læt þessi dæmi nægja til þess að sýna hversu
langt sumir þeir menn ganga í að nota fjarhrifaskýr-
inguna, sem fyrir hvern mun vilja komast hjá að viður-
kenna að miðlafyrirbrigðin geti stafað frá „öðrum
heimi“, þeir ganga miklu lengra í þá áttina en árangur
vísindalegra tilrauna með fjarhrifin gefur nokkurt leyfi
til, og sennilegt er, að ýmsir þeir, sem djarflegast hampa
fjarhrifatilgátunni gegn hinum sálrænu fyrirbrigðum,
þekki ekki nema mjög lítilfjörlega vísindalegar rann-
sóknir á fjarhrifunum.
Af ráðnum hug, hefi ég sleppt því atriðinu, sem vi.t.
anlega er stórvægilegast frá sjónarmiði spiritistanna,
nfl. því, að fjöldi sönnunargagna hefir borizt, sem ger-
samlega óhugsandi er að koma nokkurri tilgátu við um
jarðnesk fjarhrif, eins og þegar upplýsist af vörum mið-
ilsins atvik, sem engum jarðneskum manni gátu verið
kunn, en reynast síðar að hafa verið nákvæmlega rétt.
Þeim tilfellum sleppi ég því að þau liggja fyrir utan
ramma þess efnis, sem ég hefi til meðferðar í þetta sinn.
IV.
Það, sem fyrir mér vakti með því að semja þetta er-
indi var:
1) að sýna með fáum dæmum hvernig fjarhrif milli