Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 45
M O R G U N N
39
íjórum mánuðum) hafði her Lincolns háð 26 orustur og
ur*nið þær allar. Þannig rættist miðilsspáin gersamlega.“
Á einum þessara funda fór flygill, sem miðillinn var
að leika á, að hreyfast. Eftir beiðni miðilsins lögðust þeir
°furstinn, dómarinn, forsetinn og tveir menn aðrir, sem
v°ru í fylgd með honum, ofan á flygilinn, en með ölium
t>essum þunga lyftist hann a. m. k. fjóra þumlunga frá
gólfi.
Miðillinn, sem þær orðsendingar komu í gegnum, sem
áður er getið og höfðu mikil áhrif á Lincoln, hét Nettie
Colburn, og var þá tæplega tvítug að aldri. Á einum
íundanna kom orðsending þess efnis til forsetans, að
hann ætti sjálfur að fara til vígvallarins. Daginn eftir
Uuttu blöðin þá fregn, að forsetinn ætlaði að heimsækja
herinn við Potomac.
Þráfaldlega sagði þessi unga stúlka forsetanum frétt-
*r af vígvellinum áður en þær bárust til Washington.
Eftir að Nettie Colburn giftist hét hún Mrs. Maynard
°g gaf hún þá út bók, sem mjög var lesin og hét: ,,Var
Abraham Lincoln spiritisti ? “
(Úr bók Howard Qrey: „Visions, Previsions and Miracles in Modern
Times.“).
John Ruskin,
brezki rithöf. frægi, svaraði einu sinni vini sínum, sem
roinnti hann á, að einu sinni hefði hann ekki trúað á ann-
að líf: „Jú, ég man það vel og það voru öllu öðru fremur
hinar ómótmælanlegu sannanir spiritismans, sem gáfu
niér þessa trú aftur . . . Hann býr yfir þeim sönnunum,
sem nægja mér . . .“