Morgunn - 01.06.1940, Page 66
60
M O R G U N N
er að sanna, að eingöngu stafi frá jarðneskum mönnum,
og eru sama eðlis og sönnunargögnin í skýrslusafni
Brezka sálarrannsóknafélagsins, sem gera kröfu til að
teljast komin frá öndum framliðinna. Slíkt hefir ennþá
ekki verið gert“.
Eftir áratuga langt rannsóknarstarf í þessum efnum
var Arthur Hill svo lærður maður, að fyllsta ástæða er
til að taka hann trúanlegri, þegar hann ritar eða talar
um þau, en aðra, sem hafa litla þekking á þeim í sam-
anburði við hann. Og svo er enn eins að gæta, þegar meta
skal með sanngirni sönnunargildi fjarhrifaskýringarinn.
ar með eða móti skýring spiritistanna og það er þetta:
Það er æði-mikill munur á því, hvort hægt er að ná
mjög einföldum fjarhrifa-árangri með sterkri einbeiting
viljans og langri þjálfun hjá tveim persónum og aftur
hinu, sem mjög algengt er að gerist á tilraunafundum,
að miðillinn lýsir nákvæmlega löngu liðnum atvikum,
sem eru hálf gleymd og grafin í vitund einhvers fundar-
manns og hann er engan veginn að hugsa um. Það er
mikill munur á því, hvort mér getur tekizt með einbeittri
og sterkri hugsun, að koma einföldu hugskeyti inn í sál
manns, sem er að reyna að taka við því, og aftur hinu, að
miðill rekur upp fyrir mér langa, samfellda sögu úr lífi
mínu, eða látins vinar, sem ég var engan veginn að hugsa
um, þótt hún rakni upp fyrir mér, þegar ég heyri hana
sagða. Ég vona að yður sé ljóst, að á þessu tvennu er
æði mikill munur.
Mig langar að taka dæmi: Á fundi hjá hinum fræga
miðli, Mrs. Piper, kom orðsending, sem tjáði sig að vera
frá syni manns nokkurs, sem einn fundargestur þekkti
eitthvað örlítið, en miðillinn alls ekki. Maðurinn var
Sir Oliver Lodge og honum voru skilaboðin send. Hann
kannaðist alls ekki við þau atriði, sem skilaboðin fjöll-
uðu um, en síðar reyndist allt að hafa verið nákvæmlega
rétt. Um þetta segir Arthur Hill, í bók sinni „Sálarrann-
sóknir“, á þessa leið: