Morgunn - 01.06.1940, Qupperneq 17
M O R G U N N
11
tókst ný-guSfræðinni við annan höfuðþáttinn í verkefni
sínu: Jesú, sem boðbera og prédikara eilífra sanninda,
gerði hún góð skil, en kraftaverkamanninum Jesú, sem
máttugur var ekki aðeins í orði, heldur og í verki, gat
hún ekki gert sömu skil, til þess skorti hana bæði trú á
undrið og þekking á lögmálum sálrænna fyrirbrigða.
Vegna þess að frjálslynda guðfræðin bar ekki gæfu til
að hagnýta sér niðurstöður sálarrannsóknanna eins og
hún hefði getað gert, ekki óvitrari menn en þeir voru,
sem veittu þeim forstöðu, já þessvegna hefir hún goldið
all-mikið afhroð og vegur hennar því miður lækkað á
síðari árum.
Sú mynd, sem ný-guðfræðin, eða sögulega biblíugagn-
rýnin, dró upp af Jesú frá Nazaret, var ófullnægjandi,
því að það vantaði á hana svip hins guðlega kraftaverka-
manns, sem svo var máttugur í verki, að líf hans varð
þrungið þeim udrum og stórmerkjum, sem N.tm. geym-
ir svo margar æfintýralegar frásagnir af.
Yfir þessa hliðina á persónu hins sögulega Jesú hafa
sálarrannsóknirnar brugðið ljósi skilnings og þekkingar.
Þrátt fyrir hirðuleysi frjálslyndu guðfræðinnar og vantrú
hinnar íhaldssömu hafa þær, með glæsilegri rökfesti og
stórmerkilegum tilraunum sýnt og sannað, að því fyrir-
heiti Krists, að kraftaverkamátturinn ætti að fylgja læri-
sveinum hans, er óhætt að trúa, því að það fyrirheit hans
er daglega að rætast enn.
Það er þetta, sem um spiritismann og hinn sögulega>
jarðneska Jesú frá Nazaret er fyrst og fremst að segja:
hann hefir leitt mikinn fjölda manna í flestum löndum
heims nær honum og gert þeim marga leyndardómana í
lífi hans og starfi skiljanlega. Það er full von til þess að
oss spiritistum veitist örðugt að skilja, að þetta starf vort
skuli vera gert að árásarefni á oss af kirkjunnar mönn-
um, og vér taldir niðurrifsmenn fyrir að leggja fram mik-
ilvæg gögn, til að gera mönnum skiljanlega þá hliðina á