Morgunn - 01.06.1940, Page 10
4
M O R G U N N
Hvað segir spíritisminn um Krist?
Eftir séra Jón AuSuns
Háttvirtu áheyrendur.
Þegar S. R. F. í. boðaði til þessarar samkomu var aug-
lýst, að hér yrði svarað árásum.
Engri einstakri árás, í ræðu eða riti, ætla ég að svara,
þó tilefni séu nóg, heldur þeirri allsherjarárás frá hægra
fylkingararmi þeirra, sem að ti'úmálunum starfa með
þjóðinni, að spiritisminn haldi uppi raunverulegum árás-
um á Krist og vinni að útrýming allrar Krists-trúar og
Krists-dýrkunar úr landinu.
Þetta árásarefni er síðan fært í mai'gvíslegan búning
og borið fram gegn þeim mönnum, sem gerast svo djarf-
ir, að tala vinsamlega og af skynsemd um málið, og
svæsnastar verða árásirnar ef það er prestur, sem boi'-
inn er ,,sök“.
í þessu sambandi er skemmst að minnast hinna fá-
dæma öfgafullu árásargreina, sem trúmálablaðið Bjarmi
flutti á liðnu hausti, gegn séi'a Pétri Magnússyni í Valla-
nesi fyrri vígsluprédikun hans í dómkirkjunni. En
,,sök“ hans var einkum sú, að hann hafði leyft sér að
tala af afdráttarlausri sannfæringu og skilningi um sál-
arrannsóknamálið og þann þýðingai'mikla stuðning, sem
niðurstöður þess hafa veitt trúarlífi margra manna og
geta veitt kirkjunni, sem óneitanlega virðist ekki urn
of vera vopnum búin í sinni baráttu. Gegn þessari ,,ó-
hæfu“ voru greinar trúmálablaðsins stílaðar. Prédikun-
arstól dómkirkjunnar mátti ekki nota til slíks.
Það er ákaflega auðvelt að skrifa fyrir svo blindtrúaða
lesendur, að sleppa megi að ósekju öllum tilraunum í
þá áttina að bera fram rök fyrir máli sínu, en það er
ekki auðvelt að verjast þeiri’i tilhugsun, að greinai’höf-