Morgunn - 01.06.1940, Qupperneq 85
M O R G U N N
79
Fsychometry.
Eftir Einar Loftsson.
Hafa hlutirnir sál? Eru þeir gæddir einhverskonar lífi
eða vitund? Yður kann að þykja þetta nokkuð einkenni.
leg spui'ning eða jafnvel heimskuleg, sem ég að þessu
sinni varpa fram yður til íhugunar. Ég ætla heldur ekki
að fara að reyna til að telja yður trú um, að vasahníf-
urinn, hringurinn, úrið eða brjóstnálin yðar eigi sjálf-
stæða vitund eða líf í venjulegum skilningi. En hitt er
mér óhætt að fullyrða, að til eru þeir menn, sem gætu
sagt yður frá einu og öðru af því, sem þessir eða aðrir
hlutir virðast vita og muna úr yðar eigin lífi, og ekki
aðeins yðar eigin, heldur og úr lífi eins eða fleiri þeirra,
er kynnu að hafa átt þessa hluti á undan yður, ef þessir
l’yrst nefndu menn héldu þeim í höndum sínum eða
snertu þá, alveg eins fyrir því, þótt þér hefðuð máske
aldrei heyrt neitt um hina fyrri eigendur þeirra. í fljótu
bragði sýnist þetta virðist óneitanlega benda til þess, að
jafnvel það, sem vér nefnum dauða hluti, svo sem vasa-
hnífurinn eða brjóstnálin, svo ég nefni einhver nöfn, eigi
minnishæfileika í einhverjum skilningi og hæfileikann
til að muna þekkjum vér aðeins í sambandi við það, sem
vér nefnum vitund. Engum er að vísu unnt að sanna, að
hinir svonefndu „dauðu hlutir“ séu vitund gæddir, en
hitt er óvefengjanleg staðreynd, að þeir verða stundum
sem opin bók í höndum þeirra karla og kvenna, sem
hæfileika eiga til að nema huliðsmá] þeirra, og það er
eins með þennan hæfileika og aðra sálræna hæfileika
mannanna, að fleiri eiga þá, en þeir einir, sem gera sér
fulla grein fyrir því. Hlutir þessir og aðrir slíkir virðast
stundum geta verið einkennilega margfróðir um það,
sem á daga eigenda þeirra hefir drifið, þeir sýnast stund-
u™ muna það, sem búast mætti við að væri með öllu