Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 27
M O R G U N N
21
heimsóknum, og mér skilst að hugsandi mönnum — ekki
sízt hinum efagjörnu — ætti að þykja meiri trygging í
því, sem rannsakað er af frægustu vísindamönnum, en
hinu, sem einstakir menn og óþekktir segja að fyrir þá
hafi þorið.
Þessar birtingar framliðinna er nú á tímum algengast
að nefna líkamninga. E. t. v. hugsa einhverjir yðar, á-
heyrendur mínir, að hér sé aðeins um að ræða ósannaðar
og lítt rannsakaðar svip-myndir, í hálfdimmum herbergj-
um atvinnumiðlanna, þar sem hægt er að villa trúgjörnu
fólki sýn og gera því blekkingar.
Ég vil nefna yður fáein dæmi þess, hversu þessi fyrir-
brigði líkamninganna hafa verið rannsökuð: hinn heims-
frægi lífeðlisfræðingur, próf. Richet við Sorbonneháskól-
ann í París varði 30 árum sinnar dýrmætu starfsæfi til
þessara rannsókna, í svo miklu rúmi lágu þær honum. Dr.
Crawford, prófessor í vélfræði og verkfræði við háskól-
ann í Belfast, rannsakaði þessi fyrii'brigði fimm ár sam-
fleytt og BaronSchrenck-Notzing, prófessor í sálfræði við
háskólann í Miinchen, varði 15 árum til þess að rannsaka
fyrirbrigðin. Allar þessar rannsóknir leiddu til þess, að
fyrirbrigðin sönnuðust. Þess utan voru allir miðlarnir,
sem notaðir voru, fólk sem ekki gerði sér miðilsstarfið
að atvinnugrein, enginn þeirra þáði eyris laun fyrir starfa
sinn, og nærfellt hundrað vísindamenn, flestir læ'knar
eða háskólakennarar, hafa gefið vottorð um áreiðanleik
fyrirbrigðanna í Munchen.
E. t. v. hefir enginn rannsakað þessi fyrirbrigði ítar-
legar en Sir William Crookes, sem gerði tilraunir með
miðilinn Miss Florence Cook í þrjú ár samfleytt. Frá þeim
rannsóknum langar mig að skýra örlítið nánara.
Þegar ungfrú Cook var fallin í trans, birtist hjá henni
Vera, sem nefndi sig Katie King; hún birtist stöðugt hjá
rniðlinum og var rannsökuð um þriggja ára skeið. Ljós-
myndir voru teknar bæði af miðlinum og Katie King
hvorri um sig, og sömuleiðis af þeim báðum saman.Stund-