Vaki - 01.09.1952, Page 30

Vaki - 01.09.1952, Page 30
viðkomandi þarna úti, einangrað eins og þornað frœ, heldur lifandi, samstœð heild, hluti af málaranum, og hann veit ekki lengur hvort hann er þarna úti eða þarna úti er hann. m. Nútímamálari álítur eftir nákvœma rann- sókn á tœkni sinni, ekki í orði heldur verki, að hann hafi leyfi til þess að skipa formum og litum á strigann eftir eigin vild, þar sem þau birtast á fletinum fyrst og fremst fyrir átak hans. Þetta er ekki sama og að segja, eins og sumir álíta þó, að það sé gert samkvœmt heimsku og leti, heldur er það gert eftir því sem samvizka hans, gáfur og vilji bjóða honum. List, það er líking og bygging (metafór og konstruktion). Líkingin hefur staðið í for- grunni um undanfarnar aldir, byggingin í bakgrunni. Hvorttveggja er mótstaða sem málarinn verður að vinna, áður en hann getur fengið hugsun sinni búning. f dag hefur líkingin vikið úr öndvegi, byggingin skipar fyrsta sœti. Margir halda, að þess vegna sé öll mótstaða horfin úr listinni og hver geti leikið sér að því að skapa mynd. En það er öðru nœr. Krafan um byggingu í málverki er jafn veigamikil ef ekki veigameiri en kraf- an um rétta eftirmynd. Það er engu vanda- minna að fullnœgja því boði en hinu, sem lýtur að eftirmyndinni. Spyrjið bygginga- meistarann hvort það valdi honum ekki örðugleikum að skipa herbergjum, glugg- um, hurðum, breidd og lengd, í samstœða heild. Ekki líkist þó hús neinu. Þótt hin forna mótstaða, er fólst í eftirlíkingu ytri myndar, hafi minnkað til muna og sums staðar horfið, er önnur mótstaða komin í hennar stað: krafan um konstruktion, þörf- in fyrir samrœmi. Hinum unga málara er gefið frelsi til þess að umgangast form þau, er hann hittir fyrir utan sig eða á strigafletinum. ekki til þess að níðast á þeim eða af- skrœma þau, heldur til þess að þau gangi betur til samfylgdar við byggingarvið- leitni hans, en framrás hennar veitir hon- um engu síður fullnœgingu en líking. Listaverkið verður því í augum hans við- kvœm smíð sem hefur samrœmið að œðsta takmarki. Enda er náttúran fyrst og fremst stór og margbrotinn smíðisgripur fyrir sjónum hans. Þegar málarinn stendur fyrir framan hana, fjarblátt fjall, mosa- vaxna steinflís, knipplinga laufblaðs, dul- arfulla ásýnd mannsins, eru áhrifin sem hann verður fyrir af henni fyrst og fremst byggingarlegs eðlis. Til þess að láta form- in eða litinn tala eða rétta út hendur sínar af fletinum, til að grípa í þá sem leið eiga fram hjá, verða grip þeirra að vera í samrœmi við önnur lík, sem aldrei láta okkur í friði á ferð okkar um heiminn. Enda þótt líkingunni hafi verið svipt á baksviðið, hefur henni ekki verið afneitað. Hún er meira að segja höfð í hávegum í sumum greinum myndlistar, en þá jafn- an meira undir sama sjónarhorni og í skáldskap eða ljóði, en birtist síður sein bein eftirmynd. En líking og eftirmynd eru ekki hið sama, þótt þœr hafi birzt slíkar í myndlist undangenginna alda. Vissu- lega getur líkingin dýpkað og skýrt, bak- við hana liggja oft þau sannindi, sem við komumst ekki beint að og hún er ein fœr um að tjá. Fjallið hefur á sér mynd sofandi konu, í steinfléttu hvílir hvítur eng- ill, í skýi er saknandi mannshreyfing. í stað þess að sýna konuna notar málar- inn eins og skáldið form fjallsins, til þess að sýna hvíld engilsins bregður hann upp mýkt flúrsins á steininum, skýið túlkar betur flug saknaðarins en mannsmyndin. Það sem skírskotað er til, er miklu fersk- ari efniviður en arfteknar fyrirmyndir síð- aldanna. Þannig er minni hœtta á að lík- ingin detti dauð til jarðar. Manni sem vanizt hefur að ganga bog- TlMARITIÐ VAKI 28
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.