Hugur - 01.06.2008, Side 11

Hugur - 01.06.2008, Side 11
Erindi Konjusíusar viö samtímann 9 að staðhæfa að asísk heimspeki hafi ekkert fram að færa - þá geta þeir réttlætt fyrir sjálfum sér að þurfa ekki að leggja það á sig að kynna sér hana. Hins vegar er ég bjartsýnn á framtíðina þar sem ég verð var við aukinn áhuga á asískri heim- speki meðal yngri heimspekinga sem finna í henni nýstárlega vinkla til að nálgast grundvallarviðfangsefni heimspekinnar. Mápá hugsa sér að heimspeki sem á uppruna sinn í öðrum menningarhefðum kenni okkur að spyrja annars konar spurninga? Vissulega. Asísk heimspeki getur til dæmis opnað augu okkar fyrir því að ýmsar spurningar okkar, sem við höfum talið vera altækar, eru í raun háðar menningu, tíma eða málfræðilegri formgerð tungumálsins. Sem dæmi má taka tvíhyggju anda og efnis sem einfaldlega er ekki hægt að setja fram á forn-kínversku. Af því má annað hvort draga þá ályktun að Kínverjarnir hafi verið svona heimskir, sem er augljóslega fráleitt, eða að tvíhyggjan sjálf sé að minnsta kosti að hluta til háð merkingar- og setningarfræðilegum sérkennum indó-evrópskra tungumála. Þú segist vera bjartsýnn á að áhugi á annars konar heimspeki muni aukast ífram- tíðinni. Um pessar mundir er allt sem snýr að Kína mikið í umræðunni og kínversk heimspeki, einkum konfusíusarhyggja, hefurað nokkru leyti notið go'ðs afpeirri athygli. Telurðu að konjusíusarhyggja sé að sœkja isig veðrið í heiminum og að hún muni leika stœrra hlutverk íheimspekilegri umræðu á næstunni? Ég hygg að konfusíusarhyggja verði meira áberandi í heimspekilegri umræðu í framtíðinni, einkum vegna þess að hún fæst við ýmsar spurningar sem brenna mjög á fólki í nútímanum og snúast um það að finna merkingu í heimi og lífi sem virðast með öllu merkingarlaus. Þar að auki gerir hún þetta án þess að gera kröfu um að fallist verði á tiltekna frumspeki eða guðfræði. I kristni, gyðingdómi, íslam, búddisma og hindúisma er að finna frábæra innsýn af ýmsu tagi en sá sem ædar raunverulega að tileinka sér þessar stefnur þarf að taka trú á ýmislegt sem erfitt er að samræma nútíma eðlisfræði og líffræði. Konfusíusarhyggja gerir ekki neina sambærilega kröfu. Auk þess teflir konfusíusarhyggjan fram áhugaverðum valkosti gegn hinu sértæka sjálfshugtaki sem nú ræður ríkjum í pólitískri og siðferðilegri hugsun í veröldinni en er bersýnilega ekki að auka réttlæti og jöfnuð í henni. Konfúsíusarhyggja gæti með þessum hætti leiðrétt þá gegndarlausu einstaklings- hyggju sem hefur rutt sér til rúms á Vesturlöndum allt frá upplýsingunni. Konfúsíusarhyggja hefúr einnig fengið meiri athygli en áður Jyrir að vera einhvers konar aflvaki efnahagsuppgangsins íAustur-Asíu. Já, hér áttu við hina svoköfluðu „smádreka" eða „smátígra" í Asíu, þ.e. Suður- Kóreu, Tævan, Singapúr og Hong Kong. Efnahagsuppgangur á þessum svæðum er stundum kenndur við „konfusíska kraftaverkið". Það er að vissu leyti villandi að kenna þennan efnahagsuppgang við konfúsíusarhyggju því konfúsíusarsinnar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.