Hugur - 01.06.2008, Page 132

Hugur - 01.06.2008, Page 132
130 Jóhann Björnsson nemendur kæmu með spurningar heimspekilegs eðlis heldur en spurningar um einkunnir og einkunnagjöf. Eg fór því að velta fyrir mér hver sé í raun tilgang- urinn með því að gefa einkunnir. Verða nemendur betri í heimspeki fyrir vikið? Verður fagið trúverðugra fyrir samstarfsfólki mínu, skólastjórnendum, foreldrum og nemendum? Og hvaða máli skiptir trúverðugleiki fagsins gagnvart öðrum ef ég er sannfærður um ágæti þess án formlegra mælinga? Ég ákvað að hætta að gefa einkunnir. A vitnisburðarblaði frá skóla kemur hins- vegar fram að nemendur hafi lokið námi í heimspeki. Og hvað hefur breyst? Breytingin hefur orðið svo mikil að það hefur ekki hvarflað að mér að byrja aftur að leggja fyrir verkefni með það í huga að ætla að gefa fyrir þau einkunnir. Náms- mat er sumum nemendum streituvaldur og að vera stressaður heimspekinemi er ekki góður kostur. Nú þurfa nemendur ekki að hafa áhyggjur af því að það sem þeir gera og það sem þeir segja muni birtast sem dómur í formi talna í lok skólaárs. Fyrir vikið leyfa þeir sér að sækja kennslustundirnar á sfnum eigin for- sendum. Sumir eru mjög virkir og taka afstöðu til flestra viðfangsefnanna, aðrir koma í tíma vegna þess að þeir vilja fyrst og fremst hlusta. Báðir kostirnir eru í boði.2 Það er undir nemendunum sjálfiim komið hvað þeir fá út úr þessum kennslustundum. Þar sem aUar mæhngar hafa verið aflagðar, þar sem engin próf eru tekin og þar sem engin er heimavinnan hefur nemendahópurinn orðið fjölbreyttari en hann ella væri. Fyrir afnám námsmats voru það iðulega nemendur sem voru færir í ritun og færir í að standast þær formlegu kröfur sem skólinn gerði sem sóttu þessa tíma. Eftir að námsmat var aflagt hefur fjölbreytnin í nemendahópnum aukist og nem- endur sem eiga við vanda að glíma, s.s. leiðist í skóla, eru með námsörðugleika, eiga erfitt með að skrifa og standa sig ekki sem skyldi í öðrum námsgreinum, koma mikið í þessa tíma og standa sig ekki bara vel heldur eru greinilega mjög oft að finna eitthvað í skólanum sem höfðar til þeirra. Ég hef þá trú að sjálfsmynd margra þeirra batni og hamingja innan skólans aukist. Ég er á þeirri skoðun að fátt sé mikilvægara í skólastarfi en einmitt hamingja nemendanna.3 Hópur nemenda, ekki síst drengir sem hafa átt erfitt með að fóta sig í hefð- bundnu námi, þar sem mikið er lesið og skrifað og mikið prófað og mælt, hafa verið að koma í heimspeki, fundið sig þar og staðið sig nokkuð vel. Það er ekki óalgengt að aðrir nemendur en þeir sem valið hafa heimspeki óski eftir að fá að koma í einstaka tfma sem gestir, t.d. ef einhver önnur kennslustund í skólanum feflur niður. Einnig eru dæmi þess að nemendur sem eru mikið fjar- verandi í kennslustundum af ýmsum ástæðum óska eftir því að vera gestir í heim- speki í stað þess að þvælast einir um ganga skólans. Ef til vill mætti orða þetta 2 Þó að almennt sé álitið að samræðurnar séu lykilatriði í heimspeki þá skiptir það miklu máli að gefa nemendum kost á að vera með án þess að gera kröfur um að þeir taki til máls. Ég sannfærðist um þetta þegar ég fékk málhaltan nemanda til mín sem hafði mjög gaman af heimspekinni en átti erfitt með að tjá sig munnlega og vildi það alls ekki frammi fyrir samnemendum sínum. 3 Ég vissi það ekki fyrr en mér var bent á það nýlega að afstaða mín til skólamála er að mörgu leyti lík þeirri sem finna má í Summerhill-skólanum, sbr. A.S. Neill, Summcrhill-skólinn, þýðendur SINE-félagar í Darmstadt (Mál og menning 1976). Áhrif á hugmyndir mínar um skólastarf koma annarsstaðar frá eins og greint er frá síðar í þessari grein.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.