Hugur - 01.06.2008, Side 169

Hugur - 01.06.2008, Side 169
Ritdómar 167 samanstendur af go kennisetningum á 23 blaðsíðum sem Leibniz ritaði að ævi- kveldi. Það vekur athygli þegar textarnir þrír eru lesnir hversu lidum breytingum frumspeki Leibniz virðist taka á þeim 30 árum sem hann fæst við hana, að því er virðist að mestu í hjáverkum. Grunn- hugmyndirnar eru nokkurn veginn hinar sömu enda þótt hugtakanotkunin þróist. Ædun Leibniz með frumspeki sinni er að verja hefðbundnar hugmyndir um persónulegan og skiljanlegan Guð og að sköpunarverk hans sé gott, enda þótt (eða einmitt vegna þess að) mennirnir hefðu frjálsan vilja til þess að breyta ekki einungis rétt heldur einnig rangt. Rökum sínum fyrir þeirri sýn teflir Leibniz fram gegn ýmsum helstu hugsuðum aldarinn- ar: frumspekilegri tvíhyggju Descartes, tilefnishyggju Malebranche, algyðistrú Spinoza o.m.fl. Þegar þessir skotspónar hans settu fram frumspekikerfi sín reyndu þeir, hver með sínum hætti, að komast hjá því að eigna Guði ákveðna eiginleika sem gætu gert hann að mótsagnakenndri veru. Að dómi Leibniz væri hins vegar vel hægt að bjóða upp á frumspeki sem leyfði Guði að samræmast orðum heil- agrar ritningar og viðurkenndum hug- myndum manna um hann en sem væri um leið í engu ósamræmi við vísindalega þekkingu. Nú er undirritaður sekur um hið sama og svo margir aðrir sem hafa á annað borð nám í heimspeki á samviskunni: að hafa ekki lesið mikið í Leibniz. En eftir lestur þessa kvers get ég ekki neitað því að „lausn" Leibniz í þessum efnum virð- ist mér heldur fjarstæðukennd. Sjálfur er hann sér greinilega meðvitaður um hversu óvenjuleg og h'tt sannfærandi kenning hans þótti við fyrstu sýn (sjá t.d. 127). Spurningin er hvort hún verði nokk- uð trúverðugri við nánari skoðun: Heim- urinn samanstendur af ómælanlegum verundum eða „mónöðum" sem mynda í sameiningu bæði efnislega og andlega hluti þrátt fyrir að vera sjálfar óefnis- legrar (= andlegrar?) náttúru. Það sem gerir mónöðukenninguna að óvenjulegri eindakenningu er að mónöðurnar mynda einingar veruleikans saman án þess þó að snertast, þ.e. án þess að hafa áhrif hverj- ar á aðrar. Þess í stað fylgir hver þeirra eigin áædun í samræmi við forákvarðað samræmi og stöðuga varðveislu guð- legrar forsjónar en engin raunveruleg orsakatengsl eru á milli þeirra. Almennt þykir mér eðlilegt að virða hvert heimspekikerfi út frá eigin for- sendum (að svo miklu leyti sem við átt- um okkur á þeim) og reyna því að forðast að skoða mónöður sem einhvers konar „fyrirrennara" atóma eða gena í vísinda- sögunni. En jafnvel þótt ædunin sé ekki að leggja mat á kenningu Leibniz út frá vísindum samtímans vakna óneitanlega spurningar um hvað sé sameiginlegt og hvað ekki sameiginlegt með slíkum hugtökum og grunnhugtökum í nútíma- náttúrufræði, þó ekki væri nema til þess að gera sér betur grein fyrir því í hverju mikilvægi frumspeki Leibniz er fólgið og hveijar eru takmarkanir hennar. Hver er t.d. málsvörnin fyrir því að hver þessara mónaða eigi að endurspegla allar aðrar mónöður? Er það til þess eins að mó- nöður nái að skilja hina æðstu mónöðu, Guð? Hvaða gátur um tengsl milli anda og efnis telur Leibniz sig geta leyst þeg- ar hann heldur því fram að hver þessara aðskildu verunda sé „eins og heill heimur og eins og spegill Guðs eða alls alheims- ins sem hún tjáir, hver með sínum hætti [...] hún tjáir [...] allt það sem verður í heiminum, í fortíð, nútíð og framtíð" (64-65)? Erfitt er að svara þeirri spurn- ingu hvort mónöðukenningu Leibniz megi réttlæta með sannfærandi hætti út frá samtíma hennar eða hvort hún hafi alla tíð verið fremur furðuleg hugarsmíð og lítið meira en það. Þrír stuttir kynningartextar á sér- kennilegu heimspekikerfi svara engan veginn þeim spurningum sem vakna við lestur þeirra, heldur gegna þeir fyrst og fremst því hlutverki að hvetja til frekari lestrar. Það minnir mann á hversu lítið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.