Helgafell - 01.12.1942, Blaðsíða 133
MERGURINN MÁLSINS
Arfur: Skattur:
1000— 2000 rúblur ekki meira en 1%
2000— 6000 — 20 af 2000+ 5% af afgangi
6000— 10000 — 220 - 60000+ 8% - —
10000— 40000 — 540 - 10000 + 10% - —
40000—100000 — 3,540 - 40000 + 25% - —
100000—200000 — 18,540 - 100000+40% - —
200000—500000 — 58,540 - 200000 + 60% - —
500000 og þar yfir 238,540 - 500000 + 90% - —
Það er eftirtektarverðast við stefnu
Rússa í fjármálum, eins og hún nú er orðin,
hversu rík áhersla er á það lögð, að búa
í haginn fyrir fjölskylduna og heimili ein-
staklingsins. Á fyrstu árunum eftir bylt-
inguna var ekki um það skeytt, eins og
áður var getið, en nú eru breytingamar
orðnar miklar á mörgum sviðum. Fóstur-
eyðingar eru bannaðar, foreldrar eru
ábyrgir að lögum fyrir ófélagslegri eða
and-félagslegri hegðun barna sinna, ýtt er
undir menn að byggja sér hús bæði á sam-
yrkjubúgörðum og í verksmiðjuhverfum,
erfðafjárskatturinn er vægur, — allt er
þetta gert til þess að treysta fjölskyldu-
böndin.
Nú vaknar óhjákvæmilega sú spurning,
hvort hætta sé á, að upp komi í Rússlandi
stétt, sem ekki þarf að vinna en hefur lífs-
viðurværi sitt af erfðafé, einkum í ríkis-
skuldabréfum, er það eykst frá kynslóð til
kynslóðar.
Enginn vafi leikur á því, að slík stétt
verður til, verði lögunum ekki breytt, þótt
hún geti aldrei orðið fjölmenn. En nái
Rússland því marki, að engu þurfi lengur
að kvíða um framleiðslu, landvarnir og
neyzluvörur, eru róttækar breytingar á
fjármálakerfinu óumflýjanlegar. Að því
verður þó engum getum leitt, hvenær sá
dagur rennur upp, vegna styrjaldarinnar
og þeirrar gífurlegu eyðingu orku og fram-
leiðslutækja í Ráðstjórnarrikjunum, sem
hún hefur í för með sér.