Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 41
„Undrið“ í spœnskri menningarbaráttu
irnir að sýna „þolinmæði“ og póli-
tíska háttvísi“ svo að „Radio Espana
Independiente“ (ólögleg útvarpsstöð
andspyrnuhreyfingarinnar) fái ekk-
ert að vita. Þeir vara þá við að ánetj-
ast kommúnistum og krefjast að þeir
séu ósviknir menntamenn og ópóli-
tískir. Þeir heimta líka að þeir varpi
fyrir borð lýðræðislegri og byltingar-
sinnaðri sannfæringu sinni, og ef þeir
geti ekki aðhyllzt ríkisstjórnina, þá
að minnsta kosti skoðanir ópólitískra,
frjálslyndra borgara.
Þessi sambönd Fragas og hans nóta
við andspyrnuhreyfinguna hafa fyrst
og fremst það gildi fyrir þá, að þeir
geta gert sér fullkomna spjaldskrá
yfir andstæðinga sína í mennta-
mannastétt, í henni geta þeir fljótt
séð, þegar alvara er á ferðum, hverj-
ir eru líklegir til að láta undan síga
fyrir þrýstingi frá stjóminni og
hverja er hyggilegast að afhenda sem
fyrst lögreglu Alonsos Vegas til að
hindra að þeir valdi truflunum.
Fragaklíkan býður fyrst og fremst
„mótþróagjömum“ menntamönnum
alskonar hlunnindi, fjárhagsleg og
menningarleg sem ríkið hefur yfir að
ráða: aðgang að útgáfufyrirtækjum,
leikhúsverðlaun, kvikmyndaverðlaun,
sjónvarpsfyrirlestra, námsstyrki ofl.
Stimdum eru styrkir og verðlaun
ekki aðeins boðin, heldur veitt óum-
beðið, þegar búið er að ganga úr
skugga um að þau komi að tilætluð-
um notum. Láti viðkomandi þannig
kaupa sig er framtíð hans tryggð,
hafni hann gjöfinni flytja blöð og
tímarit um hann róggreinar eða þegj a
hann i hel. Verk hans komast ekki
lengur gegnum múra ritskoðunarinn-
ar, og ef mikið liggur við afhendir
þessi nýtízku trúvillingadómari,
Fraga Iribarne, þá „veraldlegum“
armi lögreglunnar, og þaðan liggur
leiðin í fangelsin, því að þessi „frjáls-
lyndi“ ráðherra svífst þess ekki að
beita hinum grimmustu kúgunarmeð-
ölum þegar „nauðsyn“ krefur. Það
sýna hatursárásir hans á José Berga-
mín, (hann er rithöfundur sem flýði
land 1939 en kom aftur 1963, þá tók
hann þátt í mótmælum 105 mennta-
manna gegn misþyrmingum á námu-
mönnunum í Asturíu. Fyrir það of-
sótti Fraga hann og hundelti, unz
hann varð að flýja land að nýju).
í „sálfræðilega“ stríðinu notar
Fraga viss tímarit, „Aulas“, „La Esta-
feta Literaria“ ofl. í þau fá andstæð-
ingar Frankós að skrifa og segja
meiningu sína, þeir eru látnir lifa í
þeirri blekkingu að þeir séu frjálsir
að því að koma á framfæri skoðun-
um sínum. En það verður að athuga,
að hér eru þeir í félagsskap rithöf-
unda afturhaldsins og hugsanir þeirra
missa við það allt sönnunargildi og
ádeilukraft. Þessi tímarit eru eins-
konar bóluefni sem á að gera vírus
andspyrnunnar óskaðlegan. Verst er
þó fyrir Frankósinna, að mennta-
mennirnir hafa eyðilagt þessa örygg-
31