Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 58

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 58
Timarit Máls og menningar CATHLEEN (lágt): Herrann líkni okkur, Nora! En er ekki nokkuð erfitt að fullyrða það séu áreiðanlega fötin hans? nora: Eg tek skyrtuna hans af snaganum, svo við getum borið efnið í þeim saman. (Hún leitar í fötum, sem hanga í einu horninu). Hún er hélr ekki, Cathleen, og hvar gæti hún verið? cathleen : Eg held Bartley hafi farið í hana í morgun, því hans eigin skyrta var öll storkin af salti. (Bendir í hornið). Það er þarna ermi úr sama efni. Fáðu mér hana, það dugar. (Nora kemur með ermina, og þœr bera hana saman við skyrt- una). cathleen: Það er sama efnið, Nora; en þó það sé, eru þá ekki margir strangar af því í búðunum í Galway, og eins og það geti ekki margir gengið í skyrtu úr þessu efni alveg eins og Michael? nora (hefur tekið sokkinn og farið að telja lykkjurnar,hátt): Það er Michael, Cathleen, það er Michael, guð veri sál hans náðugur, og hvað segir hún nú, þegar hún heyrir þessa sögu, og Bartley á sjónum? cathleen (tekur sokkinn): Þetta er sléttur sokkur. nora: Þetta er annar af þriðja parinu, sem ég prjónaði, og ég fitjaði upp sextíu lykkjur, og tók fjórar úr. cathleen (telur lykkjurnar): Það er einmitt lykkjufjöldinn. (Með harms- hreimi): Ó, Nora, er ekki skelfilegt að hugsa til þess, hvemig hann hefur rekið þessa löngu leið norður, og enginn til að kveða yfir honum nema svörtu nornirnar sem fljúga yfir hafinu? nora (snýr sér í hring, teygir út höndina og leggur lófann á fötin): Og er það ekki hörmulegt, þegar ekkert er eftir af manni sem var mikill ræðari og fiskimaður, annað en slitur af gamalli skyrtu og sléttur sokkur? (Örstutt þögn). CATHLEEn: Segðu mér, er hún að koma, Nora? Ég heyri eitthvert hljóð á stígnum. NORA (lítur út): Það er hún, Cathleen. Hún er komin heimundir dyr. CATHLEEN: Stingdu bögglinum undan áður en hún kemur inn. Kannski er henni rórra að hafa gefið Bartley blessun sína, og við látum sem við höfum ekki frétt neitt, meðan hann er á sjónum. NORA (hjálpar Cathleen að ganga frá bögglinum): Við skulum láta hann þarna í hornið. (Þœr láta böggulinn í hornið hjá skorsteininum. Cathleen gengur aftur að rokknum). 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.