Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 70

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 70
Thomas Mann Undrabarnið Undrabarnið kemur inn — það slær þögn á salinn. Andartaksþögn, og síðan fer fólkið að klappa, vegna þess að þama leynist einhver, borinn til forystu og múgstjórnar, sem varð fyrstur til að slá saman lófunum. Fólkið hefur ekki fengið að heyra neitt, enn sem komið er. Samt klappar það undrabarninu lof í lófa. Gífurleg auglýsingastarfsemi hefur búið í haginn fyrir undrabarnið, og sefjað fólkið fyrirfram, hvort sem því er það ljóst eða ekki. Undrabarnið kemur í Ijós fyrir framan skrautlegan veggskerm, sem er ísaumaður útflúri í empire-stíl, alsettur blómsveigum og stóreflis kynjaplönt- um. Það prílar hratt upp þrepin að leiksviðinu og gengur til móts við lófa- takið, sem hellist yfir það eins og steypibað, dálítið svalt og hrollvekjandi en samt sem áður notalegt. Barnið gengur fram á sviðsbrún, brosir ljósmynda- brosi og þakkar með því að beygja sig lítillega í hnjánum, ósköp feimnislega og fallega, rétt eins og það væri telpa en ekki drengur. Það kemur svolítið við hjörtu áhorfenda að sjá klæðnað undrabarnsins: hann er allur úr hvítu silki. Litli jakkinn, sem er vægast sagt furðulegur í sniðinu, er silkihvítur, mittislindinn og meira að segja skórnir eru úr hvítu silki. En silkihvítar stuttbuxurnar stinga mjög í stúf við litinn á mjóum ber- um fótleggjunum. Þeir eru býsna dökkir, enda er þetta lítill Grikki. Hann nefnist Bibi Saccellaphyllaccas. Hvorki meira né minna. Umboðs- inaður hans er eina sálin sem veit af hvaða nafni „Bibi“ er dregið, til stytt- ingar eða sem gælunafn, og hann álitur það vera viðskiptaleyndarmál. Bibi er með slétt, svart hár, sem nær honum niður á herðar. Því er skipt í hliðinni og bundið með lítilli silkislaufu frá kúptu brúnleitu enninu. Andlit hans er ímynd barnslegs sakleysis: lítið, ómótað nef og hrekklaus munnsvipur. En fyrir neðan augun, sem eru biksvört eins og í mús, vottar fyrir þreytumerkj- um og þar eru tveir skarpir drættir, sem bera þroska hans vitni. Af útliti hans mætti ráða að hann væri níu ára að aldri, en raunar er hann aðeins átta ára gamall og í auglýsingunum stendur að hann sé sjö ára. Fólk veit ekki sjálft, hvort það leggur í raun og veru trúnað á þetta. Ef til vill trúir það því, þvert 60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.