Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 54
Tímarit Máls og menningar cathleen (horfir út áhyggjufull): Baðstu hann ekki að aftra því, að Bartley færi í dag með hestana á markaðinn í Galway? nora: „Ég ætla ekki að tálma honum“, segir hann, „en þú skalt ekki vera hrædd. Hún liggur á bæn hálfa nóttina, og guð almáttugur fer ekki að láta hana standa uppi eina og sonarlausa“, segir hann. CATHLEEN: Er mikill sjógangur hjá hvítu klettunum, Nora? nora: Talsverður, guð hjálpi okkur. Og mikill brimsúgur vestur undan, og verður verra þegar straumurinn fer að falla upp í vindinn. (Hún gengur með böggulinn að borðinu). nora: Á ég að opna böggulinn núna? cathleen : Hún gæti vaknað og komið að okkur, áður en við værum búnar. Við yrðum lengi að því, og færum að gráta báðar tvær. NORA (gengur að innri dyrunum og hlustar): Hún er að hreyfa sig í rúm- inu. Hún kemur eftir örstutta stund. cathleen: Réttu mér stigann. Ég ætla að láta böggulinn upp á móloftið, svo hún fái alls ekki veður af honum, og kannski gengur hún niður að sjónum við fallaskiptin á eftir, að vita hvort hann reki ekki að austan. (Þœr reisa stigann upp við skorsteininn. Cathleen stígur upp í hann og stingur bögglinum upp á móloftsskörina. Maurya kemur fram úr innra herberginu. Hún lítur til Cathleenar og ávarpar hana í nöldurstóni). maurya: Dugar hann þér ekki í dag, mórinn sem þú varst búin að fá? CAThleen: Ég er nýbúin að láta brauð í hlóðirnar, og Bartley þarf að fá það, ef hann leggur af stað til Connemara núna við fallaskiptin. (Hún fleygir niður mókögglum, en Nora tekur þá og lœtur þá umhverfis pottinn). MAURYA (sezt á stól við eldinn): Hann fer ekki í dag, hann er að ganga upp á sunnan og vestan. Hann fer ekki í dag, því ég veit að ungi presturinn aftrar honum. nora: Hann aftrar honum ekki, mamma, og ég heyrði Eamon Simon og Stephen Pheety og Colum Shawn segja hann ætlaði að fara. maurya: Hvar er hann þá sjálfur? nora: Hann gekk niðreftir að vita hvort það yrði annar bátur í vikunni, og ég held það verði ekki langt þangað til hann kemur aftur, því nú er komið að fallaskiptum við græna höfðann, og kuggurinn kemur slagandi að austan. CATHLEEN: Ég heyri einhvern stikla á grjótinu. 44
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.