Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Qupperneq 83
íraland = ísland?
áttar og hvort nokkur maður byggi
norðan öræfanna. Þá fór hann norð-
ur með landinu: lét hann alla leiðina
óbyggðirnar vera á stjórnborða, en
úthafið á bakborða um þrjá daga.
Þá var hann kominn á nyrztu slóðir
hvalveiðimanna. Enn sigldi hann í
norðurátt eins langt og hann komst
aðra þrjá daga. Þá víkur landinu til
austurs eða hafið gekk inn í landið.
Hann vissi ekki hvort heldur var.
Hitt vissi hann, að hann beið þar
vestanvinds eða ívið norðlægs, en
sigldi þá austur með landi eins mik-
inn og hann gat (swá hé meahte) um
fjóra daga. Þá varð hann að bíða
byrjar frá hánorðri, því að landi vík-
ur þar til suðuráttar eða hafið skerst
inn í landið. Hann vissi ekki hvort
heldur var. Þá sigldi hann suður með
landinu eins og hann gat um fimm
daga. Þá féll þar mikið fljót ofan af
landi. Þá lögðu þeir upp í ána, því að
þeir þorðu ekki að sigla framar en
áin af ótta við ófrið. En hinum meg-
in árinnar var landið albyggt.
Hann hafði ekkifyrrhittfyrirhyggt
ból, frá því er hann fór frá heimkynn-
um sínum, en alla leiðina voru öræfi
á stjórnborða, en þar hafast engir
við nema fiskimenn, fuglafangarar
og veiðimenn og eru allir Finnar, en
úthaf var ávallt á bakborða. Bjarm-
ar höfðu byggt land sitt vel (Þá
Beorrnas hæfdon swíþe wel gebúd
hira land), og þorðu þeir (Óttar og
félagar hans) ekki að koma þangað,
en land Terfinna var allt í auðn, nema
þar sem veiðimenn, fiskimenn og
fuglafangarar dvöldust.
Bjarmar hermdu honum margar
frásagnir bæði af löndum sínum og
einnig þeim löndum, sem utar lágu,
en hann vissi ekki, hvað hæft var í
sögum þessum, af því að hann hafði
ekki séð lönd þessi sjálfur. Honum
virtist sem Finnar og Bjarmar mæltu
á nærfellt sömu tungu. Hann fór þessa
ferð að nolckru leyti í því skyni að
kanna landið, en einkum sökum
rosmhvala, því að þeir hafa mjög
verðmæt bein í tönnum sínum; —
þeir félagar færðu konungi nokkrar
slíkar tennur, — og húðir þeirra eru
mjög góðar til skipsreipa. Hvalur
þessi er miklu minni en aðrir hvalir,
ekki lengri en 7 álnir. í landi hans
eru beztar hvalveiðar, og eru þar
hvalir 48 álnir og hinir stærstu 50
álnir á lengd. Við sjötta mann sagð-
ist hann hafa drepið 60 af þeim á
tveimur dögum.
Hann var mjög auðugur af eign-
um þeim, sem eru mönnum auðsupp-
spretta, en það eru villt dýr. Þegar
hann hélt á fund konungs, átti hann
ennþá 600 tamin, óseld dýr. Þessi
dýr kalla þeir hreindýr. Af dýrum
hans voru 6 ,ginn-dýr‘. Þau eru mjög
verðmæt meðal Finna, af því að með
þeim fanga þeir villt hreindýr. Hann
var í hópi fremstu manna landsins,
en átti þó ekki nema 20 nautgripi, 20
sauðkindur og 20 svín. Það litla, sem
73