Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 113

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 113
Blómstrandi kvendýr listinni í líf) er kynlífið. Tungumál fullnægingarinnar er svo náskylt tungumáli listarinnar og um leið því hvernig við skiljum tilveru okkar, að ef við hugsuðum okkur að hin kynferðislega fullnæging væri (og hefði verið) kvalafull eða hvorki fugl né fiskur, algerlega hversdagsleg, væri ásýnd heimsins trúlega öll önnur en við höfum vanist að gera okkur í hugarlund. I kynlífinu (þ.á m. fullnægingunni) fuðrar rósamál skemmti- iðnaðarins, lista- og menningarlífsins, trúarlífsins og heilbrigðiskerfisins upp í æðra veldi og sameinast í einum hnút. Kynlífið ögrar listinni einmitt á þann hátt að (a.m.k. þykjast) stefna að því að gera allt líf að kynlífi og kippa þar með fótunum undan listalífinu. I öllum listaverkum eru bæði gefnar forsendur og óljósar, óþekktar (nýjar) forsendur. Hugmyndir manna um gamla og nýja list ráðast af hlutföllunum milli þessara stærða í hverju verki, og af samhljómi þessa hlutfalls við samsvarandi hlutfall í upplifaranum (neytandanum). Því hægt er að líta á hvern einstakling sem bæði „gamlan“ og „nýjan“ jafnt í líffræðilegum skilningi og „andlegum“ skilningi. Ennfremur má segja að það sem við köllum menningu sé það sem við getum á hverjum tíma lært eða sem er gefið, (meira að segja að hluta til meðfætt eða erft) en að listin sé eins og blossar óvæntra efnahvarfa upp af, í vissum skilningi kulnaðri, en auðvitað nauðsynlegri, öskuhrúgu menningarinnar. I þessum anda lítur menningin því út sem grá/svört, (brún), en listin sem gul/rauð, (blá/græn). Því er stundum slegið fram fullum hálsi eða sagt í hálfkveðnum vísum meðal almennings, en oftar látið flakka af þeim hóp sem vill telja sig til menntamanna sérstaklega, að ef þeir tækju sig til, þá gætu þeir líklega gert listina jafn vel ef ekki betur en hinir svokölluðu listamenn. Og þetta hafa þeir sumir reynt, oftast við „orðlistina“ en stundum líka við myndlistina. (Þá oft undir því yfirskyni „að slappa af“ með hennar hjálp eða hafa hana til annarra læknisaðgerða.) En þessar tilraunir hafa samt nær undantekn- ingalaust aðeins leitt til verka með óþægilega stórt hlutfall gefinna for- senda og því vart verið annað þegar best lætur en snoturt viðhald menningaröskuhrúgunnar, eða þá einskonar (menningar) „neysla“ tjáð í verki. I þessum tilraunum (sem að vísu spretta oft ekki af meiri alvöru en tímabundinni „listadellu" og þá einkum þeirri umgjörð hennar sem snýr að samskiptum og félagslífi) gleymist það einfaldlega að listsköpun byggir ekki nema að hluta til á „hefðbundinni" þekkingu eða kunnáttu (sem þó er veigamikill þáttur) en vex að hinu leytinu upp úr, ef til vill í líki menningarillgresis, kviku framrásarinnar (lífsins). „Listin" í listinni er hversu vel henni tekst að mynda „endurvarp" (eða forsendu) og festa þannig í sessi upplifunarmöguleika fólks á mótsagnakenndri síkviku 375
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.