Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 133

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 133
William er numinn til dýrðarinnar í skæru ljósi sem skín gegnum dyr en Ezra sem nær með anda sinn út um allar jarðir endar ævina í búri og síðan þögn. En ósigur hugmynda Ezra hefur Iíka heftandi áhrif á líf Williams. Hann Iendir að vísu ekki í búri en lögreglan hefur eftirlit með honum. I lokin rís leikritið hæst sem ljóð. Það verður að hljómfalli en þó með inni- haldi. Orð Ezra verða alráðandi á svið- inu og hníga að lokum með áhrifaríkri hljóðdvöl að lífsviðhorfi eða heimspeki Williams sem er: Það er í þögninni sem það er. Það er þá innihald lífsins og tilgangur þess, upphaf og endir. Og síð- an segir hann: Og maður verður að vera einn . . . Sá sem er í rauninni einn er hetja leiksins: Ezra. I tættum orðum hans úr útvarpinu (gegnum það ávarpar hann heiminn) er dálítill endurómur af skáldskap Vilhjálms IX hertogans af Aquitaníu, trúbadorsins sem hann unni sem skáldi ekki síður en nafna hans Vil- hjálmi Carlosi Williams, þegar hann sagði í ljóði á elleftu öld: Farai un vers de dreit nien: non er de mi ni d’autra gen. Eða: Ég skal yrkja úr engu ljóð: ekki um mig né nokkurn mann, i ófull- kominni þýðingu minni. Þannig hvarf Ezra inn í þögnina og lauk ævinni þegar áhorfandi lífsins, dauðinn, slökkti á útvarpstækinu. I leikritinu lætur Árni engan slökkva á útvarpinu og það er vel. Oður Ezra óm- ar. Guðbergur Bergsson Umsagnir um bakur MAÐUR OG HAF 1 Skáldsagan Maður og haf eftir Véstein Lúðvíksson (Mál og menning, 1984) er engin skemmtisaga. Hún segir frá endur- skoðandanum Jóhannesi, sem er nýbú- inn að missa konu sína og fylgja henni til grafar. Sagan hefst með stuttum inn- gangi og lýkur með stuttu niðurlagi en þess á milli er langur kafli, þar sem slitrótt atburðarás er látin lýsa pílagríms- ferð Jóhannesar til hafs. Hafi lesandinn ekki misst móðinn þegar í upphafi sög- unnar má hann teljast úthaldsgóður ef hann heldur það út að fylgja Jóhannesi eftir á pílagrímsgöngunni alla leið til hafs, þangað sem hann vel að merkja kemst aldrei. Með öðrum orðum: skáldsagan Mað- ur og haf er ekkert áhlaupaverk. Hún krefst óskiftrar athygli lesandans. Höf- undur hefur vel efni á að gera slíka kröfu því bókin leynir á sér, að ekki sé meira sagt. Og hvaða rithöfundur með metnað gerir ekki miklar kröfur til lesandans? Jóhannes situr í upphafi verksins á tali við Hrefnu, fullorðna konu, sem talar í véfréttastíl. Og svo hefst pílagríms- ferðin. Ótal litlar myndir taka við hver af annarri og tíunda hina ýmsu atburði, sem verða í lífi söguhetjunnar þennan stutta tíma, sem hann dvelur í annar- legum undirheimi millikaflans, þar sem sól skín aldrei inn um glugga. Einstakir kaflar minna óneitanlega á dæmisögur, sem meistarar segja lærisveinum sínum í fjarlægum löndum. Margar þessara stuttu frásagna eru bráðskemmtilegar, sumar eru í ýkjusagnastíl svo manni kemur Heljarslóðarorusta Gröndals ósjálfrátt í hug. Jóhannes býr á 9. hæð í blokk og er ýmist á ferð í lyftunni upp eða niður, 395
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.