Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Blaðsíða 82
Tímarit Máls og menningar
bók sinni, „Station Island" (1984), hagnýtir Heaney formið á hinu mikla
ljóði Dantes í eigin þágu og tengir saman leitina að trúarlegri mýtu og
sektarkenndina vegna atburðanna á Norður-írlandi. Þó formið á hinu langa
miðkvæði í þessari bók sé þvingað og tilgerðarlegt, þá hefur ótrúlega
máttugur orðstír Heaneys tilhneigingu til að blinda mann á gallana og sann-
færa mann um að hér sé á ferðinni snilldarverk! „A Kite for Michael and
Christopher“ er „tækifærisljóð“, þrungið þeirri flæðandi orku sem Heaney
hefur nú fullkomlega á valdi sínu, hvert smáatriði lýtalaust og hárnákvæmt,
málið áhrifamikið og stundum töfrum slungið, og bakvið alltsaman lífsviska
sem er lifuð og fram borin af fullkomnu hispursleysi og heiðarleik.
Meðal írskra ljóðavina og ljóðasmiða gætir undarlegrar beiskju í garbThom-
asar Kinsella (f. 1928) og verka hans. Fyrstu ljóð hans auðkenndust af
ljóðrænum þokka, sem sterk skynjun á landslagi dýpkaði (ytra og innra
landslag urðu æ nákomnari), en birtu jafnframt aðþrengda heima og myrk
átök. Eftir því sem bókum hans fjölgaði varð heildarverkið sífellt marg-
brotnara, ósveigjanlegra og kröfuharðara jafnt vitsmunalega sem tilfinninga-
lega. Tilfinning stefnumiðs og einbeitni í þessu verki frá fyrstu byrjun fékk
okkur, sem hrifumst af ljóðum hans, til að trúa því að hér væri á ferðinni
skáld sem smámsaman mundi skapa heilsteypt verk, þarsem hvert nýtt ljóð
væri viðbót við allsherjarmynstur sem skáldið væri að vinna að, og svo
sannarlega hefur sú reynst raunin. Athuganir Kinsella bregða upp snöggum
leiftrum í ytra og innra myrkri; heilu bækurnar kanna æ rækilegar þessi
myrkrasvæði og varðveita kynlega hljómfegurð í orðfæri og dularfullt vald á
að einbeita sér að tilteknum blettum á feikistóru málverki sem gert er úr
smáatriðum staðbundins og auðþekkts hversdagsveruleika.
í eldri ljóðum sínum var Kinsella veikur fyrir ákveðinni skrúðmælgi að
hætti keltneskra barða, og var þar undir áhrifum frá Yeats en dýpkaði þau
með tilraunum til goðsagnakenndrar framsetningar. Seinna kom fram hjá
honum ákveðin evrópsk tilfinning fyrir afleiðingum heimsstyrjaldanna.
Þetta var kynlega nýstárlegt á Irlandi: skáld sem var opið gagnvart Evrópu
og Ameríku gat tileinkað sér niðamyrkur styrjaldarreynslunnar og innlimað
það í goðsögulega veröld eigin ljóðlistar. Og brátt tók hið tilfinninganæma
skáld að kafa dýpra í eigin sál og kanna, að hætti Jungs, goðsögulegan
myrkviðinn sem þar var að finna. Ljóðið „Our Mother“ birtir fyrstu með-
vitund um vissa ábyrgð gagnvart þeim skelfilegu öflum sem tæta manneskj-
urnar sundur. Þar eru fyrstu áfangar á langri ferð niðrávið að uppsprettum
skelfingarinnar, undirrót þjáningarinnar, orsökum myrkursins.
Það sem kann að vekja ama hjá lesendum Kinsella er sú kynlega árátta að
208