Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Page 134

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Page 134
RITDÓMAR á íslandi á síðustu öld því lagt er mikið uppúr því að gera mynd samfélagsins sem skýrasta og þá ekkert síður þær hlið- ar sem dökkar eru. I öðru lagi hefur Böðvar lagt verulega vinnu í að rannsaka sögu byggða íslend- inga í Kanada og þróun hennar. Þetta hvort tveggja kemur fram í sögunni bæði í yfirlitsköflum þar sem farið er almennt yfir ástand og þróun og í dæmum af íjölmörgum einstaklingum öðrum en þeim sem eru aðalpersónur sögunnar. I þriðja lagi eru tengdar við söguna ffásagnir af ævintýrafólki og atburðum sem í fljótu bragði virðast hafa lítið með örlög aðalpersónanna að gera en tengjast þeim að endingu með óvæntum hætti. Þessir útúrdúrar eru off með afbrigðum skemmtileg lesning svo sem frásögnin af Moses Taylor. f fjórða lagi eru svo bréf frá vesturför- unum og til þeirra sem Böðvar hefur komist í, sumt úr fjölskyldu hans sjálfs en einnig héðan og handan og hefur hann sagt frá því að hann hyggist gefa út bréf vesturfara. Hér er um ómetanlega heim- ild að ræða sem segir sögu einstakling- anna á mjög persónulegan hátt. Bréf eru einn meginþátturinn í uppbyggingu sögunnar og tekst höfundi að mínu áliti mjög vel að fella þau að öðrum þáttum frásagnarinnar. Sögusnið Frásögnin er byggð upp með þeim hætti að í nútímanum situr íslenskur óperu- söngvari, tenór, á hótelherbergi sínu eða gestaíbúð í ýmsum stórborgum heims- ins og styttir sér stundir við að skrifa dóttur sinni, sem hann á með enskri eig- inkonu og hlotið hefur enskt uppeldi, bréf þar sem hann leitast við að segja henni sögu sína og sinna ættmenna. Hann á í fórum sínum skókassa sem fannst uppi á loffi á æskuheimili hans með bréfum frá forfeðrum hans og ffændum sem vestur fluttust og afkom- endum þeirra. En einnig hefur hann komist yfir bréfabunka með bréfum sem skrifuð voru að heiman til þessa sama fólks. Þau fékk hann hjá frænku sinni sem einnig er óperusöngkona og hann hittir af hreinni tilviljun þegar þau eiga að syngja saman við óperuna í Vancou- ver. Bréfin verða þannig einskonar kjarni frásagnarinnar en utan um efni þeirra er síðan vafið fjölmörgu öðru efni og frásögnum sem ýmist eru sviðsetn- ingar atburða um leið og þeir gerast eða yfirlit lengri atburðarásar eins og áður er getið. Frásagnaraðferðin og sjónarhornin eru því óvenju fjölbreytt og komið að efninu úr ólíkum áttum sem gefur frá- sögninni mun fleiri víddir en ella hefði verið. Sögusviðin Sögusviðin í þessari frásögn eru mörg. Fyrst er rétt að víkja aðeins að tímanum. f sögunni kallast á nútíminn og fortíðin þar sem sögumaður situr í nútímanum og dregur fram myndir úr fortíðinni um leið og hann gerir grein fyrir sinni eigin persónusögu og næsta bakgrunni. Þessi ólíku tímasvið vinna í rauninni mjög vel saman og eru mikilvægur þáttur í að koma til skila einu af meginumfjöllunar- efnum sögunnar, því að hæfileikar sem á einum tíma eru forsmáðir og jafhvel taldir til bæklunar blómstra á öðrum tíma og eru hafnir upp. En sögusviðin eru einnig mörg í rúmi. í fyrri bókinni er meginsviðið ísland á síðustu öld og lagt mikið upp úr því að skapa fremur breiða og fjölþætta samfé- lagsmynd. Höfundi ferst það mjög vel úr hendi og hann er óhræddur við að fjalla um þætti sem ekki hefur þótt mikil ástæða til að halda á lofti. Seinni hluti fyrri bókarinnar segir frá ferðinni til Kanada og landnáminu þar og þeim ómældu erfiðleikum sem mættu fólkinu sem hélt drauma sína vera að rætast svo sem endurspeglast í nafninu sem það gaf svæðinu sem því var á end- 124 TMM 1997:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.