Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Síða 8

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Síða 8
GERÐUR KRISTNÝ Missti sjón um tíma Segja má að Svava hafi skrifað ritgerð sína um Grasaferð samkvæmt læknis- ráði en hún hefur átt við nokkur veikindi að stríða undanfarin ár. „Ég veiktist mjög alvarlega síðla árs 1989, sama haust og smásagnasafnið Undir eldfjalli kom út. Ég fékk slagæðabólgu í gagnaugun sem er lífshættulegur sjúkdómur ef ekki er að gert. Lyfjameðferð sem tók tvö ár reyndist mér erfið. Svo kom í ljós að slagæðabólgan var í öllum líkamanum. Ég þurfti að hefja lyfja- meðferð upp á nýtt. í upphafi veikindanna missti ég sjón um tíma auk þess sem málstöðvarnar brengluðust. Ég hafði ekki fullt vald á málinu. Læknir minn á Reykjalundi lagði til að ég byrjaði að skrifa - bara eitthvað - til að þjálfa mig. Ég þorði lengi vel ekki að byrja. Ég held að mig hafi skort kjark til að skoða útkomuna. Ég kunni heldur ekki lengur á tölvuna. Það þurrkaðist bara allt út. Ég vissi ekki hvað átti að gera við þetta dularfulla apparat þótt ég myndi raunar að ég hefði skrifað á það einhvern tíma. Svo fór nú að rofa til, augun fóru að lagast og málið. Og einn daginn þegar ég var af tilviljun að renna augum yfir Grasaferð, því ég fór nú að lesa eins fljótt og mér var mögu- lega unnt, þá hugsaði ég með mér að það væri nú kannski tími kominn að fara að ráðum læknisins. Mér datt í hug að reyna að skrifa nokkur orð um rómantíkina í þessari litlu smásögu. Ég ætlaði að skrifa eitthvað örstutt. En greinin - eða réttara sagt smásagan - stækkaði svo mikið og reyndist svo innihaldsrík að ég sit enn límd við tölvuna yfir skáldskap Jónasar Hallgríms- sonar. En nú er kannski komið að vissum þáttaskilum.“ Frœðin heilluðu Svava lagði stund á bókmenntanám f Smith College í Massachusetts árin 1950-’52. „Námsgrein mín var enska og enskar bókmenntir. Síðara árið lagði ég sérstaka áherslu á miðaldabókmenntirnar, bæði fornensku og mið- aldabókmenntir almennt. Kennari minn í miðaldabókmenntum var prófessor Howard Patch sem var þekktur miðaldafræðingur og höfundur margra bóka um bókmenntafræðileg og goðfræðileg efni. Hann lagði mikla áherslu á samhengi miðaldabókmennta og hugsunar, sameiginleg sagna- minni og samanburðarfræði. Hann var hafsjór af fróðleik, geysilega skemmtilegur kennari. Hann flutti ekki almenna fyrirlestra heldur var hann með lítinn hóp nemenda sem sóttu tíma heima hjá honum. Þar trónaði hann á skrifstofu sinni í þægilegum hægindastól og talaði yfirleitt sjálfur stans- laust. Miðaldabókmenntirnar lifnuðu í meðförum hans, heimspekin, goða- fræðin, skáldskapurinn og jafnvel rit kirkjufeðranna urðu spennandi lestur. Hann hafði mikla yfirsýn yfir stefnur og strauma, myndmál og munstur og óf forníslenska goðafræði og sagnaminni bókmenntanna inn í miðalda- 6 www.mm.is TMM 1998:3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.