Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 52

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 52
KLAUS SCHLESINGER uppgötva smáatriði á borð við það að nú hefur óslökkvandi sköpunarþrá vestrænu skrifræðiselítunnar hellt sér yfir númerin á sporvögnunum okkar. Hlæið ekki, þeir heita núna opinberlega Tram, og það sem hjá Döblin hökti gegnum skáldsöguna Alexanderplatz sem leið fjörutíuogsex eða sextíuogþrjú heitir núna í raun og sann fimmtíuogtvö og þrettán, leið sjötíuogfjögur er orðin að leið þrjú, fjörutíuogníu að fimmtíu og tuttuguogtvö að fimmtíuogþrjú. Jafnvel einræðisstjórnin lék okkur ekki svona grátt! Einkavæðingin sér um afganginn. Ekkert hótel ber lengur sama nafn; Metropol heitir Maritim, Stadt Berlin: Forum, Palast Hotel: Radisson Plaza. Hún Berolina okkar bak við mjólkur- og ísbarinn Mokka þar sem við vorum svo oft á morgnana er horfin án þess að skilja eftir sig nokkur spor rétt eins og súlnabygging utanríkisráðuneytisins. Ég las að í hennar stað ættu að koma „höggmyndir og trjágróður“ þar til eftirlíkingin af byggingarakademíu Schinkels, sem er fyrirhuguð en ekki endanlega ákveðin, rís af grunni. í Lýðveldishöllinni beint á móti ríkir grafarþögn. Menn bíða eft ir að hún verði rifin sem reyndar er umdeilt, einnig vestanmegin, en ég þori að veðja að stjórnmálamönnunum finnst það jafn sjálfsagt mál og næsta fargjalda- hækkun. Menn bíða einungis eftir hentugu augnabliki til að fjarlægja húsið sporlaust eins og menn segja núorðið. Hve ég hunsaði það á sínum tíma og hversu mjög er mér annt um það núna að það verði varðveitt. Fortíðarþrá? Má vera en ég get ekki að því gert, mér er líka annt um dökku hliðarnar á eigin sögu en væri það síður ef ég vissi ekki að hún nær aftur í skottið á okkur, ef við getum ekki í sífellu fullvissað okkur um tilvist hennar. Á meðan vona ég í sannleika sagt að fjárfestingaliðið verði uppiskroppa með peninga svo eitthvað fái að standa áfram af því sem fyrrum tengdi okkur fastar en fyrir embættismönnunum vakti. Að vísu væri það of seint fyrir kaffibarinn okkar á mótum Unter den Linden og Friedrichstrasse. Hann hefur vikið, ásamt yfirbyggingunni sérkennilegu, fyrir blokk sem líkist meira fangelsi en þessi dálítið elskulegi og ævinlega aðlaðandi staður sem ég geymi mér í minni. Ég þarf ekki að loka augunum, innréttingin frá áttunda áratugnum stendur mér svo ljóslifandi fyrir hugskotssjónum, stífar af- greiðslustúlkurnar, árangursrík barátta stúdenta af báðum kynjum fyrir þeim rétti sínum að mega festa sér fyrirlestrana sína skriflega í minni yfir einum kaffibolla fyrir 70 penninga. Hvað mér duttu þarna margar setningar í hug, hvað ég skrifaði hjá mér margar hugmyndir, oftast við tveggja- mannaborðið fyrir framan fatageymsluna, nema ef vera skyldi að hnefa- leikakappinn Schubi sæti við barborðið - þá settist ég hjá honum. En væri feiti gítarleikarinn á staðnum, þessi sem við gáfum rússneska föðurnafnið 50 www.mm.is TMM 1998:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.