Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 55

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 55
TILGANGSLAUST AÐ VEITA VIÐNÁM! Og nýverið þegar ég ók, spölkorn austar, á ný framhjá hornhúsi sem ekki reis fyrr en íýrir þrem árum og vildi einhvern veginn ekki passa inn í dæmigerða húsaröð í Austurberlín með fútúrískar stálstengur sínar gnæfandi upp í fölan Berlínarhimininn og marglitt gaflskrautið sem minnir á nýrnaborða- öldina - nýverið bar ég kennsl á það eins og gamlan kunningja. Hver veit nema ég gerist verjandi byggingarlistarinnar frá árunum okkar þótt ég eigi erfitt með að ímynda mér að ég geti nokkru sinni litið á klumpinn sem kominn er í staðinn fyrir hina gömlu Ringbahnhalle á S-Bahn-brautar- stöðinni í Frankfurter Strasse ellegar húsgaflinn sem enn sjást ekki nema brot af og þakinn er leirbrúnum ögnum, á litinn milli leirs og kúks, við hið nýja Potsdamer Platz, öðruvísi en sem óboðna gesti. Ég veit að því fer víðs fjarri að ég sé kunnugur nútíma byggingarlist. Ég skynja hana líkt og hver annar borgarbúi, fremur bernskt en meðvitað, en ég er samt fær um - hvernig á ég að orða það? - að meðtaka mennska þáttinn í tilteknu mannvirki. Að minnsta kosti er það blátt áfram svo að líkamlega líður mér betur inni á milli húsanna í Kreuzberg eða Prenzlauer Berg en í háhýsahverfum nútímans og gildir þá einu hversu þægileg og frammúrstefnuleg þau eru að allri gerð. Nýverið, þegar ég kom of seint á minningarhátíð um Jurek Becker og fann enga smugu í yfirfullum sal akademíunnar í Hansa-hverfinu, fór ég í gönguferð með elskunni minni á bökkunum þar sem sveigurinn verður á Spree. Þar hafði verið reist, við hliðina á gamla Bolle-svæðinu, eitt af skárri eintökunum af nútíma byggingarlist úr loftkenndu spegilgleri og málmi sem gljáði næstum vinalega. Það er í laginu eins og stór segull og á skautum hans, sem liggja ármegin, gnæfa tveir einkar tilkomumiklir turnar yfir Tiergarten og Moabit. Við gengum upp á næstu brú og horfðum í margar mínútur á víxl á vinstri og hægri bakkann og gátum ekki að okkur gert. í samanburði við framhliðar aldamótahúsanna andspænis var þessi tiltölulega fallega bygging sem byggingarlistargagnrýnendur hafa lofað í hástert - afsakið svona óheflað orðbragð - hreinn viðbjóður. Mig langar að segja yður frá öðru smáatriði úr gönguferð okkar. Við vorum rétt að fara framhjá tígulsteinabyggingu gamla mjólkurbúsins, sem núna hýsir hótel, þegar það kom smá vindhviða; og þegar við héldum að brúnni heyrðum við lágan skerandi tón hægra megin við okkur sem hækkaði með hverju skrefi er við gengum í áttina til hans og varð að dularfullu, já draugalegu ýlfri á móts við nýbyggingu úr svarbrenndum tígulsteini sem felld var djarfmannlega inn í verksmiðjumannvirkið. Eitt andartak héldum við að við hefðum orðið vitni að ójarðneskum fýrirburði en þetta voru svo sannarlega ekki kveinandi sálir fórnarlamba húsnæðis- TMM 1998:3 www.mm.is 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.