Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Síða 65

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Síða 65
ÞAÐ ÓLIFÐA fundu augu hans Georg um leið og augnaráðið bæði stirðnaði og bráðnaði í senn; finleg undirgefin uppljómun; og sá sinaberi sveif í áttina til hans, greip varnarlausa hönd hans og kippti henni snöggt til sín (vani sem oft hafði mildað Georg) en reigði skyndilega höfuðið og glotti hjartanlega. Hver var nú þetta! Það var auðvitað Schaber, yfirmaður hans á laun, sá er hann síst hafði búist við í allri kösinni: sem engan veginn var hans staður; og sem núna hallaði sér að honum í rykugum skóm og hélt á bananaknippi ásamt skjala- töskunni, greinilega langt niðri, og sagði þýðri röddu: Minn kæri Georg! Hvað nú; hvað á ég sameiginlegt með honum, hugsaði Georg, þessum gamla kvalara mínum ... Minn kæri! hrópaði hann hljóðlaust furðu sleginn og horfði á vísa klukknanna þjóta áffam þessar sekúndur þegar hann skyndi- lega fór að hata hann. Á dularfullan hátt var risið mannhæðarhátt leirhús á miðju torginu: fábrotinn, mjög einmanalegur staður. Umluktur skítugum glerframhliðum gömlu stórbygginganna þar sem öryggislögreglan hafði fylgst með mið- bænum gegnum ógagnsæjar rúðurnar. Samt hafði Georg litið innilega upp til Schabers áður en hann þekkti hann. Tilskipanirnar sem hann hafði flutt er hann birtist eins og klettur á gangi stofnunarinnar höfðu verið bindandi boðskapur sem maður þráði. Knappar fljótmæltar setningarnar bakvið uppréttan hnefa höfðu útskýrt allt; og allt var óútskýranlegt: hvað Schaber var alltaf að játa fyrir honum. Það átti bara að kyngja því öllu. Á hinni æsilegu tíð undanfarið hafði Georg, fyrir forvitni sakir, farið á fýrirlestur hjá Schaber. Hann hafði vogað sér langt með þemað - og síðan, eins og Georg kallaði fram í undir lokin, farið í kringum það rögum huga. Schaber hafði vítt hann, eða eiginlega sjálfan sig, og Georg veitt brotakenndum röksemdunum athygli furðu lostinn. Á heimleiðinni hafði hann hengt sig utan á hann í reiðilosta sínum; og Schaber hafði ráðlagt honum brosandi: fara með veggjum. Skeið fundahaldanna hafði enn staðið yfir og Georg hafði vikum saman einsett sér að komafram. Fyrr en hann varði var hengd upp tilkynning og honum skipað að koma í stofnunina. Risavaxna byggingu frá öldinni sem leið með marmarastigum og mörgum voldugum dyrum og tengt við hana lágt dómhús þar sem sáust gluggar með rimlum fýrir; af og til höfðu fangar sést spásséra í nokkrar mínútur undir beru lofti í einum af húsagörðunum. Georg hafði smeygt sér inn í þröngan salinn þar sem fámenn nefnd var þegar sest við rauðdúkað borð bak við lokuð gluggatjöld, Schaber fyrir miðju; Schaber var að tala. Brjóstmynd af Marx, illa skreytt jólatré, farandfáninn á stöng í þjóðareign: skondið innbú; Georg hafði vaggað stólnum sposkur og velt spurningunum á vörum sér. Og Schaber hafði ekki lokið sér af og það TMM 1998:3 w ww. m m. ís 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.