Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 137
PÓSTMÚDERNISMI SEM HEIMSPEKILEGT HUGTAK
fjölbreytileika tjáningarmáta, málleikja, hegðunarmynstra, lífshátta eða
hugmynda.
Allt frá dögum Nietzsches hefur verið brugðist við gjaldþroti stórsagn-
anna með fagurfræðilegri (list- og skynfræðilegri) sýn á veruleikann. Sköp-
unarmátturinn og frelsi einstaklingsins til sjálfsköpunar eru sett i öndvegi.
Eftir hrun stórsagnanna höfum við ekki fyrirframgefin markmið sem segja
okkur fyrir verkum, heldur verðum við sjálf að skapa inntak, merkingu og
markmið lífs okkar. Einstaklingnum ber ekki lengur að vera eins og mann-
hugmyndir stórsagnanna segja honum að vera, heldur verður hann að axla
þá ábyrgð að skapa eigið sjálf. Þessi afstaða samræmist að mörgu leyti lífs-
reynslu nútímafólks. Hugmyndir okkar um hlutverk okkar hafa breyst mjög
á þessari öld. Einstaklingshyggja hefur farið vaxandi en grunnhugmynd
hennar er viðleitnin til að skapa sjálfan sig og „verða maður sjálfur“, sem felst
oft í að frelsa sig undan kúgandi væntingum og úreltum lífsmynstrum. Tog-
streita í sjálfsmynd nútímafólks markast af þeim hefðbundnu væntingum
sem gerðar eru til fólks andspænis hugmyndum um frelsi til sjálfssköpunar.
Dæmin um þetta eru ótalmörg. Lítum bara á eitt sem er sjálfsmynd nútíma-
fólks með tilliti til fjölskyldunnar. Fólki er nú uppálagt að reyna bæði að
þroska sjálft sig sem einstaklinga og huga að þörfum fjölskyldunnar sem
skapar oft mjög óstöðugt jafnvægi í lífi þess. Hin aukna einstaklingshyggja
sem hér birtist er ennfremur einn þeirra þátta er hefur leitt til breytinga á
fjölskyldugerðinni. Þess eðlis breytingar eru - fyrir utan frelsið sem þær
skapa fólki - ekki sársaukalaus ferli. Botnfall frelsisþróunar í þágu einstak-
lingshyggju er tilfmningaleg þjáning, reiðileysi ákveðinna meðlima fjöl-
skyldu.9 Burtséð frá aukaverkunum er ljóst að fjölhyggja í þessu sem öðru
endurspeglar veruleikaskynjun og lífsreynslu nútímafólks.
Fjölhyggjan á sér langa sögu. Faðir félagsfræðinnar, Max Weber, greindi
þegar í upphafi aldarinnar fjölhyggju siðferðilegra gilda og viðmiða. Weber
lýsti hversdagsreynslu okkar sem baráttu mótsagnakenndra gilda. í stað þess
að fyllast menningarbölsýni yfir togstreitunni sem glundroði skapar leitast
kenningasmiðir póstmódernisma við að sjá hinar björtu hliðar upplausnar-
ferlisins. Þeir reyna að varpa ljósi á vaxtarbrodda hins aukna frelsis sem er af-
leiðing hefðarrofs af ýmsu tagi. Þeim er ennfremur ljóst að fjölþætting
menningar og samfélags sem rýmra frelsi getur af sér kallar aftur á samfé-
lagslega og pólitíska viðurkenningu á mismun, sérþörfum og sérréttindum
ýmiskonar hópa innan samfélagsins. Áhersla á frelsi til valkosta og mögu-
leika gerir að verkum að póstmódernistar eru haldnir vantrú á nýrri tíma
heildarlausnum, eins og t.d. heildrænum lausnum nýaldarhyggju, sem fela 1
sér heildarviðmið. Póstmódernistar eygja þar með réttu alræðistilhneig-
TMM 1998:3
www.mm.is
135