Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Blaðsíða 55
Jón Viðar Jónsson
Að tjaldabaki í Iðnó
veturinn 1934-35
Úr bréfum Gunnars R. Hansens
Nafn Danans Gunnars R. Hansens mun jafnan skipa veglegan sess í sögu
íslenskrar leiklistar á þessari öld.1 Hann var aðalleikstjóri Leikfélags Reykja-
víkur ffá 1950 til 1958 og setti þá á svið flestar markverðustu sýningar leik-
hússins. Þetta var eríiður tími á ferli Leikfélagsins, sem þurfti í raun og veru
að sanna sig á nýjan leik í harla ójafnri samkeppni við Þjóðleikhúsið, sem var
opnað vorið 1950 og tók til starfa af fullum kraft i haustið eft ir. Gunnar vann
á þessum árum ómetanlegt starf í þágu leiklistarinnar, og það er önnur saga
og ekki jafn skemmtileg, að leikhúsið taldi sig engin not hafa fýrir krafta hans
síðustu árin sem hann lifði. Hann andaðist í Kaupmannahöfn 1. desember
1964, sextíu og þriggja ára að aldri.2 •
Gunnar R. Hansen er vafalítið einn fjölhæfasti leikhúsmaður sem hefur
náð að setja mark sitt á íslenska leiklist. Er vandséð, hvernig Leikfélagið hefði
getað sigrast á öllum erfiðleikum þessara ára, hefði það ekki haft öðrum eins
krafti á að skipa. Hann var slíkur kunnáttumaður á sviði leikmynda- og bún-
ingagerðar, að hann gerði langoftast sjálfur uppdrætti að leikmyndum og
búningum í sýningum sínum. Hann var ágætlega tónlistarmenntaður, hafði
á unga aldri numið orgel- og píanóleik við einn virtasta skóla Parísar í tvö ár,
og átti hægt með að semja lög eða undirspil fýrir leiksviðið. Auk þess var
hann þrautreyndur kvikmyndagerðarmaður, samdi nokkur kvikmynda-
handrit að leiknum myndum og gerði fjölda heimilda- eða fræðslumynda á
árunum 1940-50, flestar á vegum ríkisstofnunarinnar Dansk kulturfilm.
Raunar var það reynsla hans af kvikmyndagerð sem beindi honum til íslands
sumarið 1950. Eftir að hann settist hér að, gerði hann nokkrar ff æðslumynd-
ir jafnhliða leikhússtarfmu.
Kynni Gunnars af íslandi og íslendingum voru um þetta leyti gamalgróin.
Hann hreifst ungur af verkum Jóhanns Sigurjónssonar og Guðmundar
Kambans og kynntist hinum síðarnefnda vel.3 Fjölskylda hans var bæði
listelsk og auðug; faðir hans, Robert Hansen, var annar aðalforstjóri eins af
TMM 1998:4
www.mm.is
53