Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Side 36

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Side 36
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON eðli hennar og hlutverk, byrjaði ungur að leikstýra eigin verkum og annarra, vann óvenju náið með tónskáldum og leikmyndateiknurum. Um það leyti sem hann fór frá Þýskalandi var hann að dómi gagnrýnandans og leiksögu- fræðingsins Hennings Rischbieter búinn að ná fullu valdi á meðulum leik- hússins, en í útlegðinni gáfust fá tækifæri til leikhúsvinnu og þá yfirleitt ekki með atvinnuleikurum. Helstu áfangana á leikstjórnarferli Brechts fyrir 1933 telur Rischbieter vera sýningarnar áÆvi Játvarðsannars 1924 og á Maðurfyr- ir tnann 1931, enda hafi þær verið nýlunda í þýsku leikhúsi, hvor með sínum hætti.23 Sjö síðustu æviárin fæst Brecht svo að mestu við leikstjórn með leikflokki sínum Berliner Ensemble. Hann yrkir einnig töluvert en gengur ekki frá nema einu nýju leikriti, ef frá eru taldar aðlaganir ýmissa verka leikbók- menntanna sem hann vinnur að með aðstoðarmönnum sínum. Ég sá sýningu hans og Erichs Engel á Mútter Courage 1960, en hún var þá búin að vera á fjölunum frá 1949. Þó langt sé um liðið er hún mér enn í fersku minni, enda sá ég hana oft. Auk þess hefur mikið verið um hana ritað. Það sem kannski vakti hvað mesta athygli var hinn skýri heildarsvipur sýningarinnar, léttleiki hennar og þokki, samfara mikilli nákvæmni í leik (sem var sattað- segja næsta ólík þeim tilviljanakennda spuna sem nú virðist vinsælli en flest annað í íslensku leikhúsi). Annað sem áberandi var, og Peter Brook hefur lýst manna best,24 var sparsemin og reglan ,hluti fyrir heild1, sem náði ekki að- eins til leikmyndar heldur einnig til leiks. Það er að segja að til að túlka per- sónu sína gerði leikarinn enga tilraun til að sýna hana ,alla‘, lifa hana einsog hún er í öllum sínum margbreytileika, heldur valdi hann úr þá drætti og sýndi það úr fasi hennar sem við átti í þeirri heildarmynd sem sýningin var. Þá var bygging sýningarinnar eftirminnileg: Löng vegferð Qölskyldu með söluvagn um stríðshrjáð héruð á tólf ára tímabili, sýnd á hringsviði og í hvítu ljósi; einstök atriði voru býsna sjálfstæð en studdu þó öll meginþemað: að al- múgafólk græðir aldrei á stríði, það er blekking. Brýnn boðskapur fluttur af mikilli list, og af sigurvissu og öryggi sem fágætt er að sjá. í sýningunni voru þrír afburðaleikarar, Helena Weigel, Ernst Busch og Ekkehard Schall, en leik- hópurinn virtist þó jafn engu að síður. Ég er í engum vafa um það nú, að það var fýrst og fremst leikstjórninni að þakka hve góð sýningin var, og að hún var betri en leikritið. Löngu seinna sá ég enska sýningu með prýðisleikurum. í hana vantaði allt líf, hún var einsog svo margar Brechtsýningar mótuð af hugmyndum um það hvernig leika ,eigi‘ Brecht: sumsé kalt, tilfmningalaust, vélrænt! Það var einsog vantaði í hana alla sannfæringu og tilgang; hún var þarafleiðandi ekki lifandi og áhrifarík einsog Berlínarsýningin heldur dauð- ans leiðinleg. Kenningar Brechts um leiklist hafa oft og einatt verið skildar sem svo að 34 ww w. mm. ís TMM 1998:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.