Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Síða 137

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Síða 137
RITDÓMAR þessu, en þá er engin tölukrús til, bara verkfærakista, svo ég reisi ykkur ekki það minnismerki“ (bls. 217). En í stað þess hefur hann reist þeim minnismerki í bók og blandað saman verkfærum og tölum í orðum og sögum. Skáld verður til Það er auðsætt verkefhi sem Guðbergur hefur sett sér í þessari bók, en það er að finna/skálda upphaf eigins skáldskapar. Það er sama hvar borið er niður, allt hefur beina eða óbeina tengingu í hug- myndina um listamanninn eða fagur- fræði þess líkamlega hversdagsleika (sem sumir kalla ljótleika) sem Guðbergur hefur gert að sínum. Að því leyti er þetta ákaflega heilsteypt verk, með hreinar línur og ákveðinn boðskap. Þó má ekki skilja þetta sem svo að hugmyndir Guð- bergs um hvernig hans skáldskaparhugs- un mótaðist séu skýrðar einföldum orðum, fremur er hann að búa til skáld- skap um það upphaf svo verkið verður að skáldskap um skáldskap. Nettar, snyrtilegar teóríur eru hér ekki matreiddar pent ofan í lesandann sem gæti þá „opnað“ hans fyrri verk með þeim lykli, heldur er búinn til skáldskap- arheimur sem getur staðið sem hlið- stæða við skáldverk hans, rétt eins og hann segist vera að skrifa hliðstæðu við ævi sína. Tvennt er það helst til tekið sem hefur áhrif á hugmynd hans um listamanninn, en það er verkhugsun föður hans og sög- urnar af langömmu hans. Smíðunum hafnar hann fljótt, því hann veit að hann getur það auðveldlega: „vinnan á að bæta því við sem vantar í mann; maður á ekki að sætta sig við það sem fyrir er og fengið er af guðs náð“ (bls. 29). Þrátt fyrir það eru áhrif smíðanna sjáanleg því allar lýsingar á vinnuhugmyndum föð- urins endurspeglast í skáldhugmyndum Guðbergs, en eins og með allar speglanir er stundum erfitt að vita hvar þær byrja; hve mikið Guðbergur er að eigna föður sínum effir á, eins og þær miklu niður- stöður sem hann dregur af því atviki þegar þeir bræður fengu trélista að leika sér með og voru kallaðir listamenn. En það eru sögurnar af langömm- unni sem var svo flink að prjóna að hún gat dregið prjónlesið í gegnum gifting- arhringinn sem eru hvað skemmti- legastar. Af því að þetta er skáldævisaga er hægt að halda þjóðsagnablænum á langömmu af því að allar staðreyndir eru óljósar og heimildir allar horfnar. Þetta heimildaleysi og þjóðsagnablær- inn sem hvílir yfir langömmunni felur í sér frelsun, það leyfir Guðbergi að halda í þjóðsöguna sem og að bæta við sinni eigin túlkun og skilningi og þar með að auka og staðfesta þjóðsöguna. Ef feiknin öll af prjónlesi langömmunnar hefðu varðveist gæti það aldrei uppfyllt þjóð- söguna og sagan því orðið gagnslaus. Þessi langamma sem grét að tilefnis- lausu, tuggði mat í köttinn og prjónaði listaflíkur er heillandi fýrirmynd. Hún uppfyllir ímyndina um listamanninn sem gerir það sem hugurinn stendur til, ekki það sem siðir og venjur segja til um, eða það sem gæti verið gagnlegra svo sem eins og að elda mat fyrir fjölskyld- una í staðinn fyrir að tyggja ofan í kött. Listamaðurinn er „gagnslaus“ og lifir í eigin skáldheimi og verður að hafa ei- lífðina að viðmiði. Guðbergur rekur hugmyndir sínar úr handverki föður síns, lífsmáta langömmunnar, og kvöld- hvískri og bænalestri móður sinnar. Hans skáldlega sýn á sér nákvæm upptök og ástæður sem hann rekur að nokkru leyti í síðari hlutanum Dul- magni bernskunnar. Tónninn þar er nokkuð ólíkur þeim sem ríkir í fýrri hlutanum. 1 seinni hlutanum er rökkur, tunglsljós, óskiljanlegt hvískur, aðrir heimar, Reykjavík, karlmenn með brjóst, góðar konur og nokkurs konar erkikerlingar sem hræðast skáldskapar- sýn Guðbergs. Hann lýsir þeirri áráttu að hræða kerlinguna „sem leynist í okkur öllum“ (bls. 248) og tilraunum TMM 1998:4 135
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.