Tímarit Máls og menningar - 01.12.1998, Blaðsíða 107
Kristján Kristjánsson
Leiðinlegt er myrkrið
Um póstmódernisma, framfarir, frjálslyndi
- og tvígengil Þorsteins Gylfasonar*
1.Inngangur
Það mætti halda að ég hefði ekki haft öðrum hnöppum að hneppa síðasta
árið en að svara ádrepum á sjálfan mig í kjölfar greinaflokks um tíðaranda í
aldarlok sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins á haustdögum 1997 og fjallaði
aðallega um eymd póstmódernisma.1 Þótt skrif þessi hafi nú reynt mjög á
hjáverkaþol mitt, og kurlað þann tíma sem ég hefði ella haft til verðugri við-
fangsefna, kemst ég víst ekki hjá því að sýna eitthvert lífsmark í.kvittunar-
skyni fyrir ritgerðina „Er heimurinn enn að farast?“ í 3. heffi Tímarits Máls
og menningar (1998).
Ádrepum „á sjálfan mig“, segi ég, fyrir þá sök að svo hefur mátt virðast sem
öll gagnrýni á póstmódernisma hér á landi kristallaðist á einhvern hátt í per-
sónu minni; það hefur ekki verið rætt um kosti og galla póstmódernisma
heldur greinaflokks Kristjáns Kristjánssonar um póstmódernisma. Já, mikill
er slagkraftur minn! Jafnvel mátti lesa í Morgunblaðinu, í viðtali við þekktan
ff æðimann, að enginn gæti amast við póstmódernismanum á þann hátt sem
ég gerði nema hann væri „að norðan og fyndinn í þokkabót".2 Og ég sem er
fæddur á þeim suðlæga og öldungis ófyndna stað, Hveragerði.
Ég hitti á vordögum þungbúinn málvin sem ekkert sagðist skilja í þessum
ólátum út af skrifum mínum; þau væru ekki agnarögn frumleg heldur út-
dráttur úr verkum annarra og þar að auki væri umræðan innflutt og höfðaði
ekki til íslendinga. Munurinn á ádrepu vinarins og flestum öðrum sem á mér
hafa hrinið er sú að þessi er að miklu leyti rétt. Ástæðan fyrir því að ég skrif-
aði ekki í upphafi langa fræðilega ritgerð um póstmódernisma fýrir Tímarit
Máls og menningar eða Skírnivar að mér þótti ég ekki hafa neitt nógu frum-
legt um hann að segja. Ein fötlun mín er hins vegar sú að hafa óslökkvandi
löngun til að uppfræða almenning um það sem er að gerast í fræðaheimin-
um; mér hefur nýverið verið tjáð hér í tímaritinu að slíkt sé ekki annað en
dulbúin forsjárhyggja.3 Hvað um það: Ég gerðist heimspekilegur blaðamað-
ur um mánaðarskeið og skrifaði alþýðlegan greinaflokk þar sem ég dró sam-
TMM 1998:4
www.mm.is
105