Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 12
Náttúrufræðingurinn
12
afföll fullorðinna rjúpna fasti að við-
bættri leitni í tíma. Þar að auki eru
þau, samkvæmt þessu, algerlega
ótengd stofnsveiflunni, a.m.k. síðan
1981.
Hægt er að nota aldurshlutföll
rjúpna til að reikna þau afföll sem
fuglar á fyrsta ári verða fyrir og eru
umfram afföll fullorðinna fugla.19
Þessi affallaþáttur hefur verið kall-
aður umframafföll ungfugla (Ztx,w) og er reiknaður samkvæmt jöfn-
unni
p̂1
t,h p̂1
t
Ẑ
t
x,w = ln(p̂ ) - ln ( )
2
t,h
p̂
2
t
þar sem p̂1
t,h er hlutfall fullorðinna
fugla síðsumars og p̂2
t,h hlutfall unga,
og p̂1
ter hlutfall tveggja ára fugla og
p̂2
t hlutfall ársgamalla fugla í lok
árs. Árið er hér skilgreint þannig að
það hefst 1. maí. Aldurshlutföll fyr-
ir ársgamla og eldri fugla eiga því
við lok apríl, þ.e. fugla sem koma
í varplöndin í lok vetrar. Þeir árs-
gömlu voru ungar haustið á undan
og hlutfall þeirra p̂2
t,h.
Það eru þessi afföll, sem eru
sértæk fyrir ungana, sem sýna
athyglisverðar breytingar á milli ára
(6. mynd). Þau rísa og hníga og það
er þessi affallaþáttur sem ræður því
í lýðfræðilegum skilningi að rjúpna-
stofninn sveiflast. Óregla er þó í
gagnaröðinni. Þannig skera árin
1988−1989 og 2000−2001 sig úr (um-
framafföll lítil) og eins var aðdrag-
andi síðustu uppsveiflu annar en
áður (umframafföll héldust mikil).
Sjálffylgnigreining og hlutfylgni-
greining á gagnaröðinni gefur ekki
marktæka stuðla. Þetta ræðst vænt-
anlega af þeirri óreglu í röðinni sem
lýst var að ofan. Við getum prófað
að fella burt úr greiningunni árin
eftir 2002 á þeirri forsendu að eðli
síðustu sveiflu sé annað en fyrr.
Einnig getum við í stað útgildanna
fyrir 1988−1989 og 2000−2001 notað
meðaltöl næstu gilda ofan og neðan
við í röðinni. Ef við leyfum okkur
þetta fæst skýrari mynd af meint-
um tengslum umframaffalla og
stofnbreytinga rjúpu. Krossfylgni-
greining (e. cross-correlation function)
Út frá talningum og aldurshlut-
föllum má reikna heildarafföll full-
orðinna rjúpna (Ẑt2 ) samkvæmt p̂
jöfnunni
Ẑ
t
2 = ln (Y
t-1) - ln (Y t) - ln (p̂t2 )
þar sem Y er stofnvísitala og p̂t2 er
hlutfall fugla á fyrsta ári í varp-
stofni.10
Þessi gögn sýna að heildarafföll
fullorðinna rjúpna hafa aukist jafnt
og þétt á rannsóknatímanum (5.
mynd). Undantekningin eru árin
2003−2004 og 2004−2005, en þá urðu
alger umskipti og miklu fleiri rjúpur
lifðu af á milli ára en bæði fyrir og
eftir þetta tímabil. Það sem er sér-
stakt við þessi tvö ár er að þá voru
ekki stundaðar rjúpnaveiðar. Tíma-
raðagreining á afföllum fullorðinna
rjúpna eftir að leitnin hefur verið
jöfnuð sýnir engar kerfisbundnar
breytingar. Miðað við þetta eru
1980 1984 1988 1992 1996 2000 2004 2008
0,2
0,4
0,6
0,8
1,0
1,2
1,4
1,6
1,8
A
ffö
ll
fu
llo
rð
in
na
−
A
du
lt
m
or
ta
lit
y
ra
te
s
5. mynd. Heildarafföll fullorðinna rjúpna frá vori til vors á Norðausturlandi 1981−2007.
− Mortality rates for adult Rock Ptarmigan in north-east Iceland 1981−2007.
6. mynd. Afföll fyrsta árs rjúpna umfram afföll fullorðinna fugla. Norðausturland
1981−2007. − Yearling mortality in excess of adult mortality of Rock Ptarmigan from
autumn to spring in north-east Iceland 1981−2007.
1980 1984 1988 1992 1996 2000 2004 2008
0,0
0,2
0,4
0,6
0,8
1,0
1,2
1,4
1,6
1,8
U
m
fr
am
af
fö
ll
un
gf
ug
la
−
J
uv
. e
xc
es
s
m
or
ta
lit
y
79 1-4#loka.indd 12 4/14/10 8:48:19 PM