Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 21

Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 21
21 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags land. Hins vegar leikur meiri vafi á því hvernig hin smávaxna krabbafló Tigriopus brevicornis (5. mynd) barst til landsins. Hún fannst fyrst hér við land árið 2003,6 þótt hennar hafi tals- vert verið leitað áður. Þessi krabbafló hefur síðan fundist víða um land. Hún heldur sig í fjörupollum efst í klapparfjörum, þar sem hún getur verið talsvert áberandi ef mikið er af henni, eins og oft er. En ekki verður útilokað með öllu að mönnum hafi yfirsést hún þar til 2003. Hvað sandrækju varðar vill svo heppilega til að ákveðinn leiruskiki í grennd við Reykjavík, Blikastaða- leira, hefur verið kannaður nokkuð reglulega allt frá 1971. Sandrækju varð þar fyrst vart árið 2004 og þá í talsverðum mæli.23 Er komið þarna kjörið tækifæri til þess að kanna hvort rækja þessi hafi áhrif á lífrík- ið. Erlendis er sandrækja víða talin helsti afræningi skarkolaseiða, sem halda sig mikið á fjöruleirum og mjög grunnu vatni á fyrsta ári.26 Önnur tegund sem er sennilega tiltölulega nýkomin til landsins er sagþang (Fucus serratus) (6. mynd); a.m.k. hefur tegundin aukið út- breiðslusvæði sitt mikið á síðustu öld en hún fannst hér fyrst um þar- síðustu aldamót.27 Útbreiðslusvæði tegundarinnar er þó enn bundið við suðvesturhluta landsins. Sam- anburður svæða þar sem sagþang er ríkjandi tegund við aðlæg svæði, þar sem aðstæður eru svipaðar en tegundina vantar, getur gefið vís- bendingar um áhrif sagþangsins á samfélagsgerðir í þangfjörum.28 Komið hefur í ljós að í kjölfestu- vatni skipa leynist oft lífríki af ýms- um gerðum, og geta margar teg- undir lifað lengi í skipum.29,30 Þar sem kjölfestuvatn er losað komast þessar lífverur, oft langt að komnar, út í náttúruna. Hérlendis virðist þó algengara að íslenskur sjór sé fluttur sem kjölfestuvatn til erlendra hafna fremur en öfugt, þar sem skip koma hingað oftast fullfermd. Ekki er þetta þó einhlítt. Álitið hefur verið að flutningur lífvera milli landa sé gríðarlegur með kjölfestuvatni. Það vekur óneitanlega nokkra furðu hversu tegundafjölbreytt líf- ríki í íslenskum fjörum er, þrátt fyrir einangrun landsins. Ef bornar eru saman grýttar fjörur með svipuð hitaskilyrði hérlendis og í Noregi, kemur í ljós að um 95% tegunda í Norður-Noregi finnast einnig hér, en 100% íslenskra tegunda eru einn- ig í Noregi.31 Þessar tölur byggjast á stærri dýrum (makrófánu) eingöngu, en lausleg könnun bendir til þess að hlutföllin séu ekki ósvipuð hjá þör- ungum. Leiðin til Íslands frá Evrópu hefur því verið ótrúlega greið. Meðal þeirra 5% norskra dýrateg- unda sem ekki hafa komist til Ís- lands eru tvær sérlega athyglisverðar, þ.e. mararhetta (Patella vulgata) og fjörudoppa (Littorina littorea), en hún komst þó hingað á fyrra hlýskeiði.32 Þessar tvær tegundir eru einna mikilvirkustu þörungaætur fjörunn- ar þar sem þær dvelja, sú fyrrnefnda einkum við Evrópustrendur en hin síðarnefnda vestanhafs, þótt hún sé einnig algeng í Evrópu.33 Þar sem íslenskar fjörur eru sérstakar að því leyti að þær eru lausar við báðar 5. mynd. Krabbaflóin Tigriopus brevornis fannst fyrst 2003 en er nú algeng um land allt. Dýrið er um 1,2 mm á lengd og eru þá „spjótin“ sem aftur úr dýrinu standa ekki talin með. – The copepod Tigriopus brevicornis, first discovered in 2003 but is now common on all coasts. Ljósm./Photo: Gunnar Þór Hallgrímsson. 4. mynd. Sandrækja Crangon crangon, fannst fyrst hérlendis 2003 en er nú algeng sunnanlands og -vestan. – Brown shrimp Crangon crangon, first disvovered in 2003 but is now common in the south and west. Ljósm./Photo: Höskuldur Björnsson. 6. mynd. Sagþang Fucus serratus, varð einn af ríkjandi þörungum á stórum svæðum suðvestanlands á síðustu öld. – Toothed wrack Fucus serratus, became one of dominant algae in large areas in the southwest during previous century. Ljósm./Photo: María Björk Steinarsdóttir. 79 1-4#loka.indd 21 4/14/10 8:48:38 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.