Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 148

Náttúrufræðingurinn - 2010, Blaðsíða 148
Náttúrufræðingurinn 148 samstarfs við ráðuneyti mennta- og umhverfismála um framtíðar- málefni Náttúruminjasafns Íslands.“ 4. Ályktun um Gröndalshús: „Aðalfundur Hins íslenska nátt- úrufræðifélags, haldinn 28. febrú- ar 2009 í Kópavogi, hvetur borg- arstjórn Reykjavíkur eindregið til þess að standa vörð um Gröndals- hús og finna því nýjan stað í Grjótaþorpinu sem hæfir menn- ingarsögulegu gildi hússins og ímynd Reykjavíkur sem menn- ingarborgar. Gröndalshús og Hið íslenska náttúrufræðifélag tengj- ast sterkum böndum. Benedikt Gröndal var fyrsti formaður félagsins og í húsi hans var um tíma fyrsti sýningarsalur á nátt- úrugripasafni félagsins og þar með þjóðarinnar. Varðandi fram- tíðarhlutverk Gröndalshúss eru hlutaðeigandi aðilar hvattir til þess að gefa náttúrufræðilegri sögu hússins gaum, t.d. með því að nýta það sem fræðimanna- íbúð eða hafa þar fundaraðstöðu fyrir frjáls félagasamtök á sviði náttúrufræða.“ Útgáfa Árið 2008 kom út einn árgang- ur Náttúrufræðingsins, hálfur 76. árgangur (3.–4. hefti) og hálfur 77. árgangur (1.–2. hefti), alls tvö tvöföld hefti. Samkvæmt viljayfir- lýsingu HÍN og Náttúrufræðistofu Kópavogs frá því í september 2006 var áætlað að 78. árgangur væri kominn út í lok ársins 2008 og með því lyki átaksverkefninu sem ætlað var að vinna upp þá seinkun sem orðið hafði á útgáfu Náttúrufræð- ingsins. Ekki tókst að ljúka verkefn- inu á árinu en báðir aðilar voru þó bjartsýnir á að unnt yrði að ljúka verkefninu innan skamms. Lengi hefur stjórn félagsins rætt mögu- leikann á að koma eldri árgöngum Náttúrufræðingsins á stafrænt form sem opnaði möguleika á að gera eldri árganga tímaritsins aðgengi- lega á veraldarvefnum. Á árinu hófst undirbúningur að ljósmyndun gamalla árganga Náttúrufræðings- ins þannig að allt tímaritið verði til á rafrænu formi. Félagsbréfið kom út tvisvar sinn- um á árinu. Fyrra Félagsbréfið, sem var með auglýsingu um aðalfund félagsins, var sent öllum félagsmönn- um heim. Vetrardagskrá fræðslu- funda félagsins var í Félagsbréfi sem sent var rafrænt um haustið til allra félagsmanna með netföng, en aðrir fengu það sent heim. Fræðslufundir Fræðsluerindi Hins íslenska nátt- úrufræðifélags voru haldin síðasta mánudag hvers mánaðar yfir vetr- armánuðina að desember undan- skildum, kl. 17:15 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Átta erindi voru flutt á árinu. Sam- tals mættu 463 manns á erindin, eða 58 að meðaltali á hvern fund. Esther Ruth Guðmundsdóttir sá um skipu- lagningu og framkvæmd fundanna á vormisseri en Friðgeir Grímsson á haustmisseri. Erindi ársins voru: „Galapagoseyjar – paradís í hættu?“ Í janúar hélt dr. Hafdís Hanna Ægis- dóttir plöntuvistfræðingur erindi um danskan rannsóknaleiðangur sem hún tók þátt í til Galapagoseyja. Fundargestir voru 100. „Setlög, lífríki og hafstraumar við Norðurland frá ísöld til okkar daga“ Í febrúar hélt dr. Jón Eiríksson sjávar- líffræðingur erindi um rannsóknir sínar. Fundargestir voru 35. „Af gæsum“ Í mars hélt dr. Arnór Þórir Sigfússon fuglafræðingur erindi um gæsarann- sóknir sínar. Fundargestir voru 38. „Lax í Elliðaám“ Í apríl hélt Friðþjófur Árnason vatna- líffræðingur erindi um rannsóknir sínar á laxi í Elliðaám. Fundargestir voru 28. „Í fótspor jarðfræðingsins dr. Walkers á Austurlandi“ Í maí hélt Hjörleifur Guttormsson líffræðingur erindi um rannsóknir breska jarðfræðingsins dr. George Walker hér á landi. Fundargestir voru 62. „Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á lífríki Íslands“ Í september héldu dr. Snorri Bald- ursson og dr. Bjarni Diðrik Sig- urðsson líffræðingar erindi um nið- urstöður nýútkominnar skýrslu um stöðu lífríkis á Íslandi í tengslum við yfirvofandi breytingar á loftslagi. Fundargestir voru 55. „Jöklabreytingar og loftslag“ Í október hélt Oddur Sigurðsson jarðfræðingur erindi um vöktun jökla. Fundargestir voru 95. „Verndun og varðveisla íslenskra hraunhella“ Í nóvember hélt dr. Árni B. Stefáns- son, augnlæknir og hellaáhugamað- ur, erindi um hella. Fundargestir voru 50. Erindi Hjörleifs Guttormssonar var haldið að frumkvæði Ómars Bjarka Smárasonar jarðfræðings og í samstarfi við nýstofnað Vísindaset- ur á Breiðdalsvík, sem stofnað var í minningu jarðfræðingsins dr. George Walkers sem kortlagði jarðlög Aust- urlands á árunum 1954–1965. Um höfundinn Kristín Svavarsdóttir (f. 1959) hefur verið formað- ur Hins íslenska náttúru- fræðifélags frá 2002. Hún lauk doktorsprófi í plöntu- vistfræði frá Lincoln- háskóla í Nýja-Sjálandi. Kristín er sérfræðingur í vistfræði hjá Landgræðslu ríkisins. Póstfang höfundar Kristín Svavarsdóttir Landgræðsla ríkisins Keldnaholti IS-112 Reykjavík kristin.svavarsdottir@land.is 79 1-4#loka.indd 148 4/14/10 8:53:13 PM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.