Náttúrufræðingurinn - 2010, Side 38
Náttúrufræðingurinn
38
flokka má oft finna fjölbreyttan
vatnagróður og gróskumikil sam-
félög hryggleysingja. Hér á landi
er að finna um 7.000 smávötn og
tjarnir (0,01–0,1 km2).5 Þessi tala
gefur ekki aðeins til kynna mikinn
fjölda tjarna og smávatna því sam-
anlögð þekja þeirra er einnig mikil,
eða áætluð um 100 km2.5
Þekking á vistkerfum straum- og
stöðuvatna á Íslandi hefur aukist
mikið á síðustu árum, einkum að
því er varðar útbreiðslu og magn
lífvera ásamt efna- og eðlisþáttum
sem móta þessi vistkerfi.3,8 Tjarnir
mynda sérstök afmörkuð vistkerfi
víða um land. Oft eru þær dreifð-
ar í mörgum smáum einingum og
mynda einskonar mynstur. Hér
á landi hafa tjarnavistkerfi lítið
verið rannsökuð á kerfisbundinn
máta eða út frá vistfræðilegum
forsendum. Tiltækar upplýsingar
um lífríki tjarna eru í flestum til-
vikum byggðar á rannsóknum í
tengslum við mat á umhverfisáhrif-
um virkjana9,10,11,12,13,14 eða á svæð-
isbundnum athugunum.15,16,17,18,19
Gróðurfar í votlendi og þar á meðal í
tjörnum hefur nokkuð verið rannsak-
að20,21,22 og ítarlegar gróðurfarsrann-
sóknir hafa farið fram í Þjórsárver-
um.23 Nánast engar rannsóknir hafa
verið gerðar á eðlis- og efnafræði-
legum eiginleikum tjarna og um-
hverfisþátta í mótun þeirra lífveru-
samfélaga sem þar má finna, einkum
smádýra. Upplýsingar um líffræði
smádýra og uppbyggingu smádýra-
samfélaga í tjörnum og votlendi eru
af skornum skammti. Á þetta hafa
margir innlendir fræðimenn bent,
ekki síst í ljósi þess hversu mikilvæg
smádýr eru sem fæða fyrir votlend-
isfugla.24,25 Auk þess er mikilvægt
að árétta að töluverð röskun hefur
átt sér stað á votlendi hér á landi,
einkum á láglendi21,26 í tengslum
við búskap en einnig á hálendi og
þá aðallega tengd vegagerð eða
virkjun vatnsafls.27 Röskun á vot-
lendi hefur leitt til þess að fjöldi
tjarna og smávatna hefur horfið.
Sem mótvægi við þessa skerðingu
skipaði landbúnaðar- og umhverf-
isráðherra árið 1996, að tilhlutan
Fuglaverndarfélags Íslands, svo-
kallaða votlendisnefnd sem hafði
meðal annars það hlutverk að gera
tilraunir með endurheimt votlendis.
Í þessari nefnd átti Arnþór Garð-
arsson sæti ásamt fleiri mætum
mönnum. Á starfstíma nefndarinn-
ar (1996–2006) voru endurheimtar
mýrar, tjarnir og vötn á 15 svæðum
víðsvegar um landið.28 Víða erlend-
is hefur einnig verið gripið til þess
að endurheimta tjarnavistkerfi eða
skapa skilyrði fyrir ný til að auka líf-
fræðilegan fjölbreytileika á afmörk-
uðum landsvæðum. Samfara því
hefur þekking á tjarnavistkerfum
aukist til muna.29
Tjarnavistkerfi eru þekkt fyrir að
vera lífauðug, þar fer saman mikill
þéttleiki og fjölbreytileiki smádýra.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að ýmsir
umhverfisþættir, m.a. eðlis- og efna-
fræðilegir, ásamt þéttleika og stærð
tjarna, eru mikilvægir til að skýra
fjölbreytileika og samfélagsmynstur
sem sjá má í tjörnum.29,30,31 Stephen
A. Forbes nefnir í riti sínu The lake as
a microcosm [Stöðuvatnið sem örvist]
að líta megi á stöðuvatn sem heim út
af fyrir sig:32
Það skapar lítinn heim, örvist, þar sem
öll grunnöfl eru að störfum og leikrit
lífsins heldur áfram af fullum krafti, en
á svo litlum skala að hugurinn nær
utan um það.a
Sumarið 2002 fór fram forkönn-
un á smádýrasamfélögum í tjörnum
víða um landið sem undirbúningur
fyrir yfirgripsmeiri rannsóknir á
tjarnavistkerfum landsins þar sem
áhersla yrði lögð á vistkerfi tjarna
á hálendinu. Rétt þykir að árétta
að með smádýrum er einungis átt
við stærri hryggleysingja á borð
við krabbadýr, skordýr og lindýr. Í
forkönnun þeirri sem hér verður
til umfjöllunar var í megindráttum
um tvær einfaldar spurningar að
ræða: 1) hversu mikill breytileiki
er á smádýrasamfélögum í tjörnum
innan svæða? og 2) endurspeglar
breytileiki í samfélögum smádýra
landfræðilega legu tjarnanna?
Aðferðir
Val tjarna til sýnatöku innan hvers
svæðis var tilviljanakennt. Stuðst
var við loftmyndir af svæðunum,
tjarnir númeraðar og valdar með
slembiúrtaki eða sýni tekin úr öll-
um tjörnum á fyrirfram ákveðnum
sniðlínum. Miðað var við að tjarn-
irnar væru innan við 0,1 km2 að
stærð en í örfáum tilfellum voru þær
stærri. Við hverja tjörn var háfað úr
vatnsyfirborði, innan um botngróð-
ur og rétt yfir tjarnarbotni í a.m.k.
fimm mínútur. Sýnin voru tekin
með skaftháfi, net háfsins var með
160 µm möskvum og var skaft háfs-
ins u.þ.b. tveggja metra langt. Hiti,
sýrustig og leiðni var mæld í hverri
tjörn. Flatarmál lítilla tjarna var mælt
á staðnum en flatarmál stærri tjarna
var mælt af loftmyndum. Smádýr úr
hverju sýni voru talin og greind til
tegunda eða ættkvísla. Einnig voru
allir púpuhamir rykmýsins greindir,
en þeir fljóta í vatnsborði tjarnanna
og gefa ágæta mynd af þeim mýteg-
undum sem klöktust út dagana fyrir
sýnatöku.
Fjölbreytileiki innan tjarna var
fenginn með því að reikna sk. Shan-
non-fjölbreytileikastuðul (H’). Því
hærra gildi sem fæst (H’) því meiri
er fjölbreytileiki innan tjarnar.33
s
H´ = –� pi ln pi
i=1
s: fjöldi tegunda
pi: hlutfallslegur fjöldi hverrar tegundar
í hverri tjörn reiknað sem ni / N
ni: fjöldi hverrar tegundar
N: heildarfjöldi einstaklinga í hverri tjörn
Til að meta skyldleika einstakra
svæða eða tjarna m.t.t. tegunda/
hópa sem þar fundust var notast
við DCA-hnitun (Detrended Cor-
respondence Analysis) og notað til
þess tölfræðiforritið CANOCO
4.5.34,35 Svæðin sem rannsóknin
náði til voru: Þorskafjarðarheiði
(TSK), votlendi við Hríshólsvatn
innst í Berufirði í Reykhólahreppi
(HRS), Holtavörðuheiði (HLT) og
Þúfuver í Þjórsárverum (THV). Þau
a It forms a little world within itself, a microcosm within which all the elemental forces are at work and the play of life goes on in full, but on so small a scale as
to bring it easily within the mental grasp (Stephen A. Forbes 1887:77). 32
79 1-4#loka.indd 38 4/14/10 8:49:03 PM