Náttúrufræðingurinn - 2010, Síða 47
47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
vitni.6–14 Höfundur hefur beitt fyrri
aðferðinni víða um land2,5,15,16,17 en
ekki síst við talningar á sjófuglum
á Breiðafirði en niðurstöður eru að
verulegu leyti óbirtar.3,4
Notuð talningagreining var hreið-
ur sem er álitið að geti haldið eggi
eða unga („apparently occupied nest-
site“ (AON)),15,18 hvort heldur þau
voru með eggi, unga eða tóm. Þar
sem aðstæður leyfðu var talið af
landi, annars úr báti. Stundum voru
staðhættir þannig að telja varð sama
varp bæði af landi og sjó. Flest vörp
eru þannig að hreiður má telja með
berum augum en sums staðar þarf
að beita sjónauka. Oftast var not-
aður handteljari til hægðarauka og
til að minnka líkur á mistökum.
Flestar athuganir eru úr eigin
dagbókum frá síðustu áratugum og
skráðar í sérstaka tölvuskrá (Skrá
yfir sjófuglabyggðir á Íslandi). Þar
er einnig að finna upplýsingar úr rit-
uðum heimildum, óbirtum skýrslum,
dagbókarfærslum annarra, bréfum
eða tölvuskeytum og munnlegar
upplýsingar frá ýmsum athugend-
um. Skráin var notuð til úrvinnslu
á dreifingu varpa, stofnbreytingum,
breytingum á vörpum yfir sumarið
og aldri þeirra. Víða var leitað fanga
með upplýsingar um aldur varpa,
þótt í einhverjum tilvikum megi
sennilega fá nákvæmari ártöl sé
leitað til fleiri heimildarmanna. Þeir
sem veitt hafa munnlegar upplýs-
ingar eru nefndir fullu nafni.
Niðurstöður
Varpdreifing
Í Breiðafjarðareyjum eru 65 staðir
þekktir þar sem ritur hafa orpið
(1. tafla). Staðsetning byggðanna
er sýnd á 2. mynd og eru þær all-
ar í eyjum. Árin 1993–1994 voru
í Breiðafjarðareyjum 53 varpstaðir
í notkun af 65 en þeir voru ögn
fleiri 2005–2007, eða samtals í 57
eyjum. Þrjár byggðir höfðu lagst af
2005–2007 (Hóley - nr. 17, Akurey -
nr. 27, Heimri-Langey - nr. 28) en
sjö ný vörp mynduðust milli taln-
ingartímabila (Stóri-Breiðhólmi - nr.
10, Bæjarey (Rúfey) - nr. 15, Sand-
eyjarhólmur - nr. 37, Innri- og Ytri-
Stykkisey - nr. 38 & 39, Mýhólmur
- nr. 46, ónefndur hólmi við Innri-
Hrauney - nr. 50). Á fimm þekkt-
um varpstöðum var varp hvorki
1993–1994 né 2005–2007. Staðirnir
voru annaðhvort notaðir fyrir 1993
(Litli- og Stóri-Klakkur - nr. 12 & 13
í Klakkeyjum, Ásmóðarey - nr. 14)
eða vörp mynduðust milli talning-
artímabila en lögðust af á ný fyrir
2005 (Torfey - nr. 22, Bæjarey/Tröll-
konuhólmi - nr. 21).
Talningar 1993–1994 og 2005–2007
Niðurstöður talninga voru þær að
21.791 rituhreiður var í Breiðafjarð-
areyjum 1993–1994 en 2005–2007
hafði þeim fækkað niður í 9.652 (1.
tafla) og nemur fækkunin um 44%,
eða að jafnaði um 5,7% á ári.
Eftir sýslum var fjöldi hreiðra
1993–1994 samanborinn við 2005–
2007 sem hér segir (% af fjölda
1993–1994 í sviga): 4.774 og 1.899
(40%) í Snæfellsnessýslu, 767 og 481
(63%) í Dalasýslu, 10.002 og 5.565
(56%) í A-Barðastrandarsýslu, 6.037
og 1.678 (28%) í V-Barðastrandar-
sýslu (3. mynd). Mest fækkun hvað
heildarfjölda áhrærir varð yst í firð-
inum, sérstaklega að norðanverðu,
en hlutfallslega mest innst þar sem
langfæstar ritur hafa orpið.
Í talningunum árin 1993–1994
voru fjórar ritubyggðir með yfir
eitt þúsund hreiður. Ritubyggðin í
Elliðaey við Stykkishólm (nr. 6) var
stærst 1993 með 2.168 hreiður. Að
meðtöldum Dyrhólmum (nr. 7 & 8)
og Hesthöfða (nr. 9), sem eru aðeins
steinsnar frá heimaeynni, voru sam-
anlagt tæp 2.600 hreiður í Elliðaeyj-
arvörpum. Næststærst var varpið
í Þórisey (nr. 60) í Sauðeyjum, þá í
Hafnarey (nr. 30) og Klofningi (nr.
32) við Flatey. Eina varpið til við-
bótar með fleiri en þúsund hreiðrum
var í Skarfey (nr. 59) í Sauðeyjum.
Langflestar byggðir (34) voru með
á bilinu hundrað til þúsund hreið-
ur. Í tveimur eyjum, Hóley (nr. 17)
í Ólafseyjum og Heimaey (nr. 57) í
Sauðeyjum, voru ritur nýbúnar að
nema land 1994 og var hvor með
aðeins einu rituhreiðri.
Í talningunum árin 2005–2007 var
engin eyja með yfir þúsund hreiður.
Stærsta byggðin að þessu sinni var
Hafnarey (nr. 30) við Flatey (958
hreiður), þá Flateyjar-Klofningur
(nr. 32) (880) og síðan Elliðaey (nr.
6) (864). Rétt innan við helmingur
byggða (27) var með yfir hundruð
hreiður en 30 með hundrað eða
færri, allt niður í eitt hreiður (Sand-
eyjarhólmur (nr. 37).
Aðrar talningar
Tölur úr ofangreindum heildartaln-
ingum segja einungis að varppör-
um hafi fækkað milli samanburð-
aráranna og hversu mikið. Ekkert
kemur fram um hvernig breytingar
hafa gengið fyrir sig né hvernig
einstökum vörpum hefur reitt af.
Ýmsar upplýsingar eru til frá öðrum
0
1000
2000
3000
4000
5000
6000
7000
8000
9000
10000
Snæfellsness sla Dalas sla A-Bar astrandars sla V-Bar astrandars sla
1993–1994
2005–2007
3. mynd. Breytingar á fjölda rituhreiðra milli 1993–1994 og 2005–2007 eftir sýslum. –
Changes in Kittiwake colonies in Breiðafjörður between 1993–1994 and 2005–2007 accord-
ing to districts around the bay.
Fj
öl
di
/
N
um
be
rs
79 1-4#loka.indd 47 4/14/10 8:49:49 PM