Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 83

Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 83
83 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags sér stöðu vaðfugla í vistkerfi lands á Íslandi. Vistkerfi og fæðuvefir eru afar flókin og síbreytileg kerfi, og tengsl þátta, bæði innan og milli þrepa, verða seint skýrð til fulls. Þó eru ýmis grunnmynstur sem aug- ljóslega skipta máli og geta veitt stuðning við skoðun og greiningu tengsla. Á einföldu líkani af land- vistkerfi Íslands (6. mynd) má gera ráð fyrir að ólífrænir þættir, jarð- fræði og veðurfar hafi mótandi áhrif og stjórni rennsli vatns og frjósemi jarðvegs. Samspil jarðvegseiginleika og vatnafars ræður mestu um gróð- urfar.48 Smádýralíf byggist á sömu eiginleikum auk áhrifa gróðurs, sem verka í gegnum þrívíddarbyggingu gróðursins og lífrænar leifar.42 Fugl- ar fylgja þannig grunnþáttum jarðar og veðurfars sem birtast í byggingu búsvæða og fæðuframboði. Vað- fuglar eru ríkjandi hópur fugla í vistkerfi lands á Íslandi. Aðra mófugla mætti nefna, svo sem þúfu- tittling (Anthus pratensis) og rjúpu (Lagopus muta), en sem hópur hafa vaðfuglar algera sérstöðu á Íslandi sökum fjölda og mikils lífmassa.7 Vaðfuglar eru því líklega einhverjir bestu mælikvarðarnir á ástand og heilbrigði vistkerfa á landi, eink- um vegna þess að þeir eru einna efst í fæðukeðju landvistkerfis hér á landi og mjög algengir. Að auki eru þeir hreyfanlegir og viðgangur vaðfuglastofna gefur því víðtæk- ari vísbendingar um ástand lands en framvinda staðbundnari lífvera. Votlendi er samhangandi kerfi af blettum og rásum með sameiginlega virkni og vistkerfi.49 Þetta kerfi er svo samofið blettum af öðru tagi, t.d. ræktarlandi og graslendi, sem sumir hverjir eru einnig afar mik- ilvægir fyrir ýmsar lífverur og eru notaðir samhliða votlendinu. Þrátt fyrir þetta felst votlendisvernd eink- um í því að vernda einstaka bletti af votlendi án tillits til tengsla og heild- stæðni kerfa.30 Vaðfuglar eru mik- ilvægir í landvistkerfum og flytja t.d. bæði hryggleysingja og fræ plantna milli frá einu votlendi til annars.50,51 Þá geta vaðfuglar, sem oft eru marg- ir saman, haft veruleg staðbundin áhrif á fæðustofna sína.52 Aukinn skilningur á ferðum vaðfugla og nýtingu þeirra á mismunandi blett- um í mósaík íslenskra búsvæða hefði mikið gildi fyrir þekkingu á samhengi landslags og skilning á hvernig best verður unnið að við- haldi líffræðilegrar fjölbreytni. Landnotkun hefur og mun hafa gríðarleg áhrif á landvistkerfi og er lykilþáttur (6. mynd). Landnotk- un hefur mikil áhrif á jarðveg, t.d. vegna áburðargjafar og umsetn- ingar næringarefna í gegnum beit. Þá hefur landnotkun bein áhrif á gróðurfar, yfirleitt með þeim hætti að breyta blettóttu landi í einsleita ræktun, t.d. tún eða skóg. Beit hefur talsverð áhrif á fugla, ekki aðeins með því að breyta byggingu bú- svæða heldur einnig vegna áhrifa hennar á fæðuframboð.53 Beit get- ur haft bæði neikvæð og jákvæð áhrif og reyndar er beit bæði villtra dýra og búsmala víðast forsenda fyrir því að gróðurfar haldist á hentugu framvindustigi fyrir vað- fugla.54 Bein áhrif landnotkunar á fugla eru einnig vel þekkt, t.d. vegna þeirrar truflunar sem hún getur valdið stofnum.55 Af þessu má sjá að framtíð líffræðilegrar fjöl- breytni á Íslandi er nátengd nátt- úrlegum ferlum og samspili þeirra við landnotkun. Það ástand sem nú ríkir er að talsverðu leyti mótað af búsetu manna og með auknum þéttleika og umsvifum hafa menn sífellt meiri áhrif. Að framan feng- ust vísbendingar um að skörun líf- fræðilegrar fjölbreytni á efri stigum og landnotkunar sé líklega mun meiri en búast mætti við ef fuglar og landnýting væru jafndreifð. Þétt- leiki og fjölbreytni mófugla voru mest í frjósömum landbúnaðar- héruðum sunnanlands og norðan. Þetta er væntanlega vegna þess að ræktunarskilyrði eru hvað best á sömu stöðum og fjölbreytni í gróðri og dýralífi er einna mest. Einnig er 
 6. mynd. Einfalt líkan af vistkerfi Íslands: samspil eðlisþátta, gróðurs, dýralífs og landnotk- unar. Grunninn að frjósemi landsins og mósaík búsvæða mynda eðlisþættir jarðar og veður- far. Eiginleikar jarðar móta landslagið ásamt veðurfari (veðrun vatns, vinds og jökla) og hafa einnig mest að segja um magn og dreifingu áfoks og efnasamsetningu jarðvegs. Auk mót- unar landslags ræður veðurfar miklu um magn og dreifingu vatns. Auk áhrifa jarðrænna þátta, ræðst frjósemi jarðvegs mikið af vatnafari. Samspil frjósemi og vatnsbúskapar ræður svo einna mestu um gróðurfar – mósaík og tegundasamsetningu. Gróður stendur undir smádýralífi bæði sem lífrænar leifar og með því að móta þrívídd búsvæða. Frjósemi jarðvegs, t.d. sýrustig og magn uppleystra næringarefna, hefur einnig bein áhrif á smádýr. Þá hefur jarðraki áhrif á magn og samsetningu smádýrafánunnar. Fjöldi og dreifing fugla ræðst svo af fæðuframboði og gróðurfari. Landnotkun hefur einkum bein áhrif á frjósemi jarðvegs (t.d. með áburðargjöf tengdri landbúnaði), gróðurfar (ræktun) og fugla (t.d. truflun). – Schematic diagram of the (Icelandic) terrestrial ecosystem. 79 1-4#loka.indd 83 4/14/10 8:50:50 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.