Náttúrufræðingurinn - 2010, Page 152
www.fi.isSKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT!
Ferðafélag Íslands
FJÖLBREYTT STARFSEMI Í YFIR 80 ÁR
Líf og fjör í starfseminni
Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem hefur
það markmið að hvetja landsmenn til að ferðast
og fræðast um landið. Áhugi á gönguferðum,
fjallgöngum og útiveru hefur aldrei verið meiri og
er mikið líf og fjör í starfseminni.
Allir finna eitthvað við sitt hæfi
Ferðafélagið leggur sig fram við að mæta þörfum
breiðs hóps með miklu úrvali ferða. Í ferðaflóru
félagsins er að finna allt frá söguferðum um
grösugar sveitir til erfiðra jöklaferða. Í ferða áætlun
félagsins geta flestir fundið eitt hvað við sitt hæfi.
Á 82 árum hefur Ferðafélagið efnt til meira en
8.500 ferða með yfir 200.000 þátttakendum.
Öflug útgáfustarfsemi
Það eru allir velkomnir í Ferðafélagið og njóta
félags menn sér kjara, bæði í ferðum, skálum og
í fjölda verslana. Auk þess fá allir félagsmenn ár
bókina senda heim á hverju ári og er það hluti af
árgjaldinu. Árbókin er einstæður bókaflokkur um
land og náttúru. Auk árbókanna hefur Ferðafélag
Íslands staðið að útgáfu handhægra fræðslu og
upp lýsingarita um ferðamál, þjóðfræði og sögu
lands hluta.
Sjálfboðastarf í góðum félagsskap
Félagsstarfið hefur í gegnum tíðina einkennst
af miklu sjálfboða starfi. Félagar hafa unnið
að bygginga framkvæmdum, farið vinnu ferðir í
skála eða í frágangsferðir, stikað og unnið að
upp byggingu göngu leiða, unnið við brúargerð og
margt fleira. Í staðinn hafa þeir fengið fríar ferðir,
fæði og félagsskap.
Samgöngubætur og uppbygging svæða
Félagið hefur unnið markvisst að samgöngu
bótum, lagt akvegi og brúað ár. Það hefur haft
samstarf við sveitarfélög um landgræðslu,
náttúru vernd og uppbyggingu svæða eins og t.d.
í Landmanna laugum, á Þórsmörk og Emstrum.
Sæluhúsin standa öllum opin
Sæluhús Ferðafélags Íslands og deilda félagsins
úti um land eru þægilegir áningarstaðir á ferða lagi
um óbyggðir Íslands. Þau eru á 37 stöðum víðs
vegar um landið og getur allur al menning ur nýtt
þau óháð aðild að félaginu.
79 1-4#loka.indd 152 4/14/10 8:53:18 PM